Viðskipti innlent

„Play verður á­fram ís­lenskt“

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Einar Örn Ólafsson er forstjóri Play.
Einar Örn Ólafsson er forstjóri Play. Vísir/Einar

Flugfélagið Play mun ráðast í umfangsmiklar breytingar og dregur úr verulega úr tengiflugi milli Evrópu og Norður-Ameríku. Á sama tíma verður aukin áhersla sett á sólarlandaferðir. Vélum og starfsfólki á Íslandi mun fækka, og sótt um flugrekstrarleyfi erlendis.

Play greindi frá breytingunum nú síðdegis, eftir lokun markaða. Forstjóri félagsins segir að kjarninn í starfsemi félagsins hafi verið að tengja saman borgir í Norður-Ameríku og Norður-Evrópu, en minni áhersla hafi verið lögð á flug til Suður-Evrópu og Kanaríeyja. Nú verði þessi snúið við.

„Þannig að það verði svona lykilþátturinn í starfseminni, að fljúga héðan og til Suður-Evrópu, og auðvitað til baka aftur. En að talsvert minni þáttur starfsemi félagsins verði fólginn í því að fljúga fólki yfir Atlantshafið með viðkomu í Keflavík,“ segir Einar Örn Ólafsson, forstjóri Play.

Þurfa annað leyfi til að ráða erlendar áhafnir 

Þær vélar sem Play hafi nú yfir að ráða séu fullmargar miðað við breyttar áherslur. Þrjár til fjórar vélar verði því nýttar í starfsemi fyrir aðra flugrekendur. Umsóknarferli um flugrekstrarleyfi á Möltu er hafið vegna breytinganna, sem Einar segir ekki koma að fullu til framkvæmda fyrr en eftir um það bil eitt ár.

„Það verður ekki hagkvæmt að reka flugvélar fyrir aðra flugrekendur, nema þá með áhöfnum sem eru staðbundnar, sem eru á þeim stað þaðan sem vélin er gerð út. Við þurfum annað flugrekstrarleyfi til þess.“

Fækkun hjá félaginu sem þó verði áfram íslenskt

Þó að flugrekstrarleyfið sé Maltneskt þarf hvorki að vera að umframvélarnar umræddu fljúgi þaðan, né að áhafnirnar verði maltneskar. Þær verða þó ekki íslenskar.

Þurfið þið þá að ráðast í uppsagnir á því fólki sem fyrir er hér?

„Það er nú nokkur starfsmannavelta í félaginu, og mikið ungt fólk sem vinnur hjá okkur og svona. Þannig að ég á von á því að meiri hluti þeirrar fækkunar sem óhjákvæmilega verður með þessu, eigi sér stað með náttúrulegri starfsmannaveltu,“ segir Einar.

Hann vill girða fyrir allan misskilning um að félagið sé alfarið að færa starfsemi sína úr landi.

„Play verður áfram íslenskt lágfargjaldafélag, með meiri hlutann af sínum vélum í rekstri frá Keflavík.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×