Körfubolti

Jakob Birgis­son fer á kostum sem Gummi Ben í Körfuboltakvöldi Extra

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jakob Birgisson negldi Gumma Ben.
Jakob Birgisson negldi Gumma Ben.

Fyrsti þátturinn af Bónus Körfuboltakvöldi Extra er á dagskrá á Stöð 2 Sport í kvöld. Þátturinn var tekinn upp í hádeginu í dag.

Í Körfuboltakvöldi Extra er farið yfir síðustu umferð í Bónusdeildinni á skemmtilegan og hressan máta og slegið á létta strengi. Fyrsti gestur tímabilsins er grínistinn Jakob Birgisson sem stendur um þessar mundir fyrir uppistandssýningunni Vaxtaverkir í Tjarnarbíói.

Jakob er þekktur sem nokkuð góð eftirherma af íþróttalýsandanum Gumma Ben og fengu þeir Stefán Árni og Tómas Steindórsson Jakob til að lýsa lokaandartökunum í leik fjögur í úrslitaseríunni milli Vals og Grindavíkur sem Guðmundur Benediktsson.

Hér að neðan má sjá afraksturinn en þáttur fer í loftið klukkan 19:30 í kvöld á Stöð 2 Sport.

Klippa: Jakob Birgisson fer á kostum sem Gummi Ben í Körfuboltakvöldi Extra



Fleiri fréttir

Sjá meira


×