Lífið

Harry og Meghan séu ekki að skilja

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Harry og Meghan sjást í síauknum mæli í sitthvoru lagi.
Harry og Meghan sjást í síauknum mæli í sitthvoru lagi. EPA-EFE/ERNESTO GUZMAN

Frægustu hjón veraldar, hertogahjónin Harry og Meghan, eru ekki að skilja jafnvel þó að athygli hafi vakið að þau séu nú farin að gera hluti meira í sitthvoru lagi. Þetta segir Guðný Ósk Laxdal, sérlegur sérfræðingur í málum konungsfjölskyldunnar.

Tilefnið eru umfjallanir erlendra slúðurmiðla þar sem því er veitt athygli að hjónin séu farin að sjást æ oftar opinberlega í sitthvoru lagi. Harry er nú staddur í Afríku við góðgerðarstörf sín á meðan hefur Meghan meðal annars látið sjá sig á barnaspítala í Los Angeles svo eftir hefur verið tekið.

Ekkert að gerast

„Það er ekkert að gerast hjá Harry og Meghan en þau selja rosalega vel. Þau eru fyrirsögnin sem fólk klikkar á,“ segir Guðný Ósk Laxdal í Bítinu á Bylgjunni. Hún hefur undanfarin ár haldið úti Instagram reikningnum Royal Icelander og fylgist meira með málum konungsfjölskyldunnar heldur en flestir.

„Ef það er frétt um Harry og Meghan, fólk er forvitið um þau. Það er ekkert að gerast hjá þeim núna, þau eru ekki að gagnrýna konungsfjölskylduna og þá er það búið til.“

Guðný bendir á að flest hjón vinni í sitthvoru lagi í nútímasamfélagi. Harry hafi alltaf haft sterk tengsl í Afríku og sé þar að sinna sínum góðgerðarstörfum. Meghan sé að vinna að ýmsu, sem mismikil leynd ríki yfir. Hún hafi meðal annars gert samning við umboðsskrifstofu í Bandaríkjunum. Þau vinni bæði að því að bæta ímynd sína.

„Harry og Meghan eiga svolítið ekki sjéns. Þau eiga líka í smá stríði við fjölmiðla, sérstaklega í Bretlandi. Það er erfitt að taka mark á því sem er skrifað um Harry og Meghan af því að það er alltaf slæmt,“ segir Guðný.

Hún segist spá því að þau muni halda áfram saman, að þau muni ekki skilja. Það styrki þau líklega hvað heimurinn virðist oft vera á móti þeim.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.