Lífið

Móðir Whitney Houston látin

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Cissy Houston lést í faðmi fjölskyldunnar í gærmorgun á heimili sínu.
Cissy Houston lést í faðmi fjölskyldunnar í gærmorgun á heimili sínu. Getty

Bandaríska söngkonan Cissy Houston, Grammy-verðlaunahafi og móðir tónlistarkonunnar Whitney Houston, er látin, 91 árs að aldri. Hún átti farsælan feril sem söngkona og kom meðal annars fram með stórstjörnunu, Arethu Franklin og Elvis Presley.

Bandarískir fjölmiðlar greindu frá andlátinu í gær þar sem vísað er í yfirlýsingu frá fjölskyldu Houston þar sem segir að hún hafi verið í líknandi meðferð vegna Alzheimers-sjúkdómsins og látist á heimili sínu í New Jersey.

Hún sló í gegn sem dægurlagasöngkona og sem meðlimur í hinum þekkta bakraddahópi The Sweet Inspirations, ásamt Doris Troy og frænku sinni Dee Dee Warwick. Hópurinn söng bakraddir fyrir marga af fremstu sálartónlistarmönnnu sjöunda áratugarins, þar á meðal Otis Redding, Lou Rawls og The Drifters, svo fáir einir séu nefndir.

Houston hlaut Grammy-verðlaun í flokknum hefðbundin sálargospeltónlist fyrir plöturnar Face to Face árið 1997 og He Leadeth Me árið 1999.

Þá starfaði hún sem kórstjóri í rúmlega hálfa öld hjá New Hope Baptist Church í Newark, þar sem tónlistarferill hennar hófst á fjórða áratug síðustu aldar.


Tengdar fréttir

Whitney Houston kvödd

Heimsbyggðin fylgdist með þegar söngkonan Whitney Houston var borin til grafar í heimabæ sínum Newark á laugardaginn í beinni sjónvarpsútsendingu.

Kjólar Whitney Houston

Meðfylgjandi má skoða kjóla söngkonunnar Whitney Houston sem féll frá um helgina, 48 ára að aldri. Whitney var ein dáðasta söngkona heims og hlaut fjölda verðlauna fyrir söng sinn. Whitney lætur eftir sig eina dóttur, Bobbi Kristina, sem hún átti með fyrrverandi eiginmanni sínum, Bobby Brown.

Whitney Houston látin

Söngkonan Whitney Houston er látin, 48 ára að aldri. Talskona hennar staðfestir þetta í samtali við Associated Press. Dánarorsök liggur ekki fyrir. Whitney var ein dáðasta söngkona heims og hlaut fjölda verðlauna fyrir söng sinn. Hún átti lengi við vímuefnavanda að stríða og fór síðast í meðferð í fyrra.

Bobbi Kristina heiladauð

Dóttir Whitney Houston mun aldrei ná sér eftir að hún missti meðvitund í janúar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×