Rafíþróttir

Bráða­bani í æsi­­spennandi net­­skák­ein­vígi

Þórarinn Þórarinsson skrifar
Guðmundur vann auðveldan sigur á Símoni 6-0 í viðureign þeirra í 16 manna úrslitum á Íslandsmeistaramótinu í netskák. Þá var ballið samt rétt að byrja og við tók magnað einvígi ungstirnanna Hilmis Freys og Aleksandr Domalchuk.
Guðmundur vann auðveldan sigur á Símoni 6-0 í viðureign þeirra í 16 manna úrslitum á Íslandsmeistaramótinu í netskák. Þá var ballið samt rétt að byrja og við tók magnað einvígi ungstirnanna Hilmis Freys og Aleksandr Domalchuk.

Heldur betur hitnaði í kolunum á Ís­lands­­meistara­­mótinu í Net­­skák í seinni um­­­ferð gær­­kvöldsins. Eftir ó­­­venju auð­velda 6-0 af­­greiðslu Guð­­mundar Kjartans­­sonar á Símoni Þór­halls­­syni tók við há­­spennu ein­vígi Hilmis Freys Heimis­­sonar og Aleksandr Domalchuk-Jonas­­son, sem stóð ekki uppi sem sigur­vegari fyrr en að loknum fyrsta bráða­bana mótsins.

Tvö áhugaverð og mjög ólík einvígi fóru fram á Íslandsmeistaramótinu í netskák í gærkvöld. Fyrst áttust við stórmeistarinn Guðmundur Kjartansson og FIDE meistarinn Símon Þórhallsson sem kom inn á mótið úr undankeppni. Guðmundur þótti því sigurstranglegri á pappírunum og sú varð raunin með afgerandi 6-0 sigri hans.

Ingvar Þór Jóhannesson og Björn Ívar Karlsson lýstu viðureignum kvöldsins í beinni útsendingu og þrátt fyrir að hafa búist við sigri Guðmundar gátu þeir ekki séð fyrir hversu stór hann yrði og sögðust nánast orðlausir.

Einvígi þeirra Hilmis og Aleksandr á Íslandsmeistaramótinu í netskák dróst heldur betur á langinn og að því loknu sagðist sigurvegarinn alveg vera til í styttri viðureign í næstu umferð.

Fjörið reyndist þó rétt vera að byrja og þeir félagar áttu eftir að þurfa að lýsa enn frekari undrum og stórmerkjum þegar Hilmir Freyr Heimisson og Aleksandr Domalchuk-Jonasson, tveir af efnilegustu ungu skákmönnum landsins og stórmeistarakandídatar, börðust eins og ljón yfir reitunum 64 í ótrúlega spennandi einvígi.

Armageddon

Eftir miklar sviptingar og magnaða varnartakta þar sem þeim Ingvari og Birni varð aldrei lýsingarorða vant og töluðu meðal annars um „stórkostlegt einvígi“ og „bestu keppnina hingað til“ var staðan jöfn 5-5 þannig að grípa þurfti til bráðabana, sem kallast yfirleitt „Armageddon“.

Þá var tefld ein úrslitaskák þar sem hvítur hafði 5 mínútur og varð að vinna en svartur fékk fjórar mínútur og dugði jafntefli til sigurs. Aleksandr hafði svartan og skemmst frá því að segja að hann vann á jafnteflinu enda býsna slyngur í þeim efnum en nýlegri skák þeirra á Íslandsmóti Skákfélaga lauk einmitt með jafntefli.

Eftir einvígið sagðist Aleksandr, í stuttu viðtali við Ingvar Þór, vera uppgefinn eftir atganginn og að hann hafi á tímabili verið viss um að hann myndi tapa. Hann gefist hins vegar aldrei upp. Þá sagðist hann, aðspurður, hafa gaman að því að keppa svona í netskák í beinni útsendingu.


Tengdar fréttir

Öruggir sigrar í tveimur ein­vígum á net­skák­mótinu

„Þetta hafðist en var ansi tæpt á köflum,“ segir Björn Þor­finns­son en hann og Hannes Hlífar Stefáns­son stóðu uppi sem sigur­vegarar eftir tvö spennandi ein­vígi á Ís­lands­meistara­móti Símans í net­skák á sunnu­dags­kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×