Lífið

Þraukuðu saman í tvo mánuði

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Josh Oyinsan and Mimi Ngulube á verðlaunahátíðinni NTA þann 11. september síðastliðinn.
Josh Oyinsan and Mimi Ngulube á verðlaunahátíðinni NTA þann 11. september síðastliðinn. John Phillips/Getty Images

Love Island sigurvegararnir Mimii Ngulube og Josh Oyinsan eru hætt saman tveimur mánuðum eftir að hafa farið alla leið í elleftu seríu af bresku raunveruleikaþáttunum vinsælu sem teknir eru upp á Mallorca í Miðjarðarhafi. 

Mimii tilkynnti um sambandsslitin á samfélagsmiðlnum Instagram. Mimii og Josh skráðu sig á spjöld sögunnar með sigri sínum í sumar en þau voru fyrsta svarta parið til þess að vera valið af bresku þjóðinni sem sigurvegarar. Þau áttu ótrúlega ástarsögu þar sem bíræfnin í meðkeppanda þeirra Joey Essex þvældist fyrir þeim um stund.

Þau eru ekki fyrstu sigurvegararnir til þess að leggja árar í bát en sigurvegararnir í fyrra Jess Harding og Sammy Root hættu einnig saman á svipuðum tíma eftir seríuna. Í tilkynningu sinni segir Mimii vita að fylgjendur sínir væru að velta fyrir sér stöðu mála og ástæður þess að þau hefðu ekkert sést saman opinberlega að undanförnu.

„Sannleikurinn er sá að við höfum verið að reyna að átta okkur á hlutunum síðan við yfirgáfum villuna en því miður mun þetta ekki ganga hjá okkur núna,“ skrifar Mimii. Hún segist vita að þetta séu aðdáendum þeirra mikil vonbrigði, rétt eins og fyrir hana sjálfa.

Hún segist þakklát aðdáendum sínum fyrir stuðninginn. Þau hefðu ekki komist eins langt ef ekki hefði verið fyrir hann, að sögn Mimii sem bað að endingu guð um að blessa fylgjendur sína.

Fram kemur í umfjöllun breska götublaðsins Metro að Josh hafi enn sem komið er ekki tjáð sig um sambandsslitin. Þau unnu fimmtíu þúsund pund fyrir sigur sinn í þáttunum, eða því sem nemur níu milljónum íslenskra króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×