Lífið

Draumkennt brúð­kaup á Sardiníu

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Parið byrjaði saman í lok árs 2021.
Parið byrjaði saman í lok árs 2021.

Ástralska leikkonan Rebel Wilson og Ramona Agruma giftu sig undir berum himni á ítölsku eyjunni Sardiníu síðastliðinn laugardag. Hjónin deildu fallegum myndum frá brúðkaupsdeginum á Instagram.

Samkvæmt bandaríska miðlinum New York post fór athöfnin fram við glæsihótelið Hotel Cala di Volpe. Báðar voru þær í hvítum síðkjólum og með hvíta brúðarvendi.

Wilson og Agruma byrjuðu saman í lok ársins 2021 en opinberuðu samband sitt ekki fyrr en í júní 2022.

Parið trúlofaði sig í Disneylandi þegar Wilson fór á skeljarnar fyrir framan kastala Þyrnirósar á Valentínusardaginn í fyrra. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.