Viðskipti innlent

Munu fljúga til Nashville næsta sumar

Atli Ísleifsson skrifar
Icelandair hyggst fljúga til Nashville í Tennessee fjórum sinnum í viku næsta sumar.
Icelandair hyggst fljúga til Nashville í Tennessee fjórum sinnum í viku næsta sumar.

Icelandair mun bæta Nashville í Tennessee við flugáætlun sína sumarið 2025.

Frá þessu segir í tilkynningu frá Icelandair en flugfélagið mun þá fljúga til átján áfangastaða í Norður-Ameríku og 34 í Evrópu. 

„Flogið verður fjórum sinnum í viku til Nashville frá 16. maí og út október á næsta ári. Tilkynnt var um nýja áfangastaðinn á blaðamannafundi á Nashville flugvelli nú rétt í þessu.

Nashville er spennandi nýr áfangastaður og er borgin fræg fyrir tónlist, menningu og matargerð. Hún er oft nefnd tónlistarborgin, enda er hún höfuðborg kántrítónlistar en hún er ekki síður fræg fyrir popp, rokk, gospel og jasstónlist. Í RCA Studio B, sem nefnt hefur verið heimili þúsund smella er til að mynda hægt að sjá hvar Elvis Presley, Dolly Parton, Roy Orbison, Everly bræður og margir fleiri tóku upp sum sinna frægustu laga.

Fyrr í dag tilkynntu Icelandair og bandaríska flugfélagið Southwest tilvonandi samstarf. Fyrst um sinn verður horft til flugtenginga um Baltimore flugvöll, en stefnt er að því að útvíkka samstarfið frekar og tengja áætlanir flugfélaganna um fleiri flugvelli,“ segir í tilkynningunni. 

Haft er eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair, segir að það sé mjög ánægjulegt að bæta Nashville við öflugt leiðakerfi Icelandair og tengja tónlistarborgina við 34 áfangastaði í Evrópu. „Þannig hyggjumst við bjóða íbúum Tennessee upp á bestu leiðina til Íslands og áfram til Evrópu. Þá mun þessi nýja flugleið opna fyrir spennandi tengingar fyrir farþega frá Íslandi og Evrópu til fjölda áfangastaða vítt og breitt um Bandaríkin í gegnum Nashville.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×