Viðskipti innlent

Um­mæli seðla­banka­stjóra „skringi­leg“

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Ingólfur Bender aðalhagfræðingur SA.
Ingólfur Bender aðalhagfræðingur SA.

Aðalhagfræðingur Samtaka Iðnaðarins segir misskilnings gæta í ummælum Seðlabankastjóra um stöðu byggingageirans og hússnæðisskort. Seðlabankastjóri tali með skringilegum hætti um áhrif hárra vaxta á greinina, líklega í tilraun til að halda verðbólguvæntingum niðri.

Samtök iðnaðarins og verkalýðsfélög hafia haldið því fram að ekki sé verið að uppfylla framtíðarhúsnæðisþörf á byggingamarkaði. Í gær sagðist Ásgeir Jónsson Seðlabankastjóri telja umræðuna um byggingargeirann undarlega.

„Það er mjög undarleg umræða sem hefur átt sér stað um byggingageirann. Í fyrsta lagi að það vanti svo mikið húsnæði alls staðar, það sé ekki byggt nóg og að vaxtahækkanir Seðlabankans séu að halda aftur að byggingageiranum. Það sem við sjáum hins vegar er að það er verið að lána út á fullu. Við sjáum heldur ekki að það sé skortur á eignum á sölu,“ sagði Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri á fundi fjármálastöðugleikanefndar Seðabankans í gær.

Byggingargeirinn ekki bara í íbúðum

Aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins segir gæta ákveðins misskilnings gæta um byggingargeirann, og bendir á að um þriðjungur veltu greinarinnar komi frá byggingu íbúða.

„Þannig að þegar við horfum á útlán til geirans í það heila, þá lýsir þróun þeirra ekki endilega hvernig íbúðarhlutinn er að þróast,“ segir Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins.

Líta þurfi sérstaklega til þróunar á íbúðamarkaði til að fá fram heildarmyndina.

„Til að mynda í nýjustu talningu HMS á íbúðum í byggingu. Þar er samdráttur.“

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.Vísir/Vilhelm

„Skringilegt“

Ásgeir virtist þá gefa lítið fyrir það að vaxtahækkanir héldu aftur af greininni.

„Það er reyndar mjög skringilegt, því ef maður les greiningu Seðlabankans sem kom út núna samhliða þessum fundi um fjármálastöðugleika, þá kemur þar fram álit sérfræðinga bankans að stýrivextirnir hafi veruleg áhrif bæði á framboðs og eftirspurnarhlið íbúðamarkaðarins.“

Þetta heyri samtökin einnig frá verktökum innan sinna raða.

Tilraun til að tala niður væntingar

Ingólfur bendir á að hlutverk Seðlabankastjóra sé meðal annars að tala niður væntingar um verðbólguþróun.

„Ég held að hann sé með þessu tali að reyna að tala verðbólguvæntingar niður.“

Aðrar leiðir séu færar til þess.

„Að viðurkenna þá rót vandans og ræða þá um lausn á honum, sem er þessi framboðsvandi,“ sagði Ingólfur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×