Viðskipti innlent

Sunna veitir Livio sam­keppni í frjó­semi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hjónin Þórir og Ingunn eru stofnendur Sunnu.
Hjónin Þórir og Ingunn eru stofnendur Sunnu.

Sunna frjósemi hefur fengið samþykkt starfsleyfi frá heilbrigðisráðuneytinu og mun formlega opna frjósemisstofu í Evuhúsi í Urðarhvarfi á haustmánuðunum. Aðeins ein frjósemisstofa hefur verið starfandi á Íslandi síðustu áratugi en með opnun Sunnu frjósemi verða þær tvær.

„Það er gríðarleg eftirvænting hjá starfsfólki að geta boðið fólki í frjósemisferli velkomið í haust. Það hefur verið ákall eftir heilbrigðri samkeppni á sviði tæknifrjóvgana og við sáum tækifæri í að koma með okkar þekkingu og áherslur að borðinu,” segir Þórir Harðarson, doktor í frjósemisfræðum og einn eigenda Sunnu frjósemi, í tilkynningu frá Sunnu.

Mikil eftirspurn hefur verið eftir tæknifrjóvgunum hér á landi. Á árunum 2018 - 2022 gengust ríflega 2.000 einstaklingar eða pör undir slíkar meðferðir. Þá fer þeim líka hratt fjölgandi sem leita til annarra landa eftir frjósemisþjónustu. Sjúkratryggingar niðurgreiddu tæknifrjóvgunarmeðferðir hjá sjö einstaklingum sem sóttu meðferðir erlendis árið 2020 en 62 árið 2022.

„Frjósemisvandi er eitthvað það erfiðasta sem fólk gengur í gegnum og við trúum því að frjósemismeðferð eigi að vera manneskjuleg og styðjandi. Sunna mun leggja áherslu á nærgætni, hlýju og samkennd og skapa umhverfi þar sem fólk finnur fyrir öryggi og stuðningi,” segir Ingunn Jónsdóttir, einn stofnenda Sunnu. 

„Ef það er eitthvað sem við höfum lært á þeim tíma sem við höfum starfað við frjósemi er það að maður getur aldrei vandað sig nógu mikið.”

Stofnendur Sunnu eru hjónin Ingunn og Þórir. Ingunn er fæðinga- og kvensjúkdómalæknir og Þórir er sérfræðingur í frjósemi. Þau hafa áratuga reynslu af frjósemislækningum, bæði á Íslandi og í Svíþjóð. Auk þeirra hafa Kristbjörg Heiður Olsen, fæðinga- og kvensjúkdómalæknir, og Hulda Hrönn Björgúlfsdóttir, hjúkrunarfræðingur, gengið til liðs við Sunnu sem eigendur. Þær deila bæði ástríðu fyrir að veita framúrskarandi umönnun og stuðning í frjósemisferlinu.

Fyrirtækið Ósar hf. er einnig hluthafi í Sunnu og veitir mikilvæga stoðþjónustu.


Tengdar fréttir

Skilur að fólk sé hugsi yfir mögulegum skyldleika við sæðisgjöf

Heimspekingur segist skilja vel að fólk hafi orðið hugsi eftir fréttir af því að skyldleiki íslenskra sæðisgjafa og þeirra sem þiggja sæði hérlendis sé ekki skoðaður. Smæð samfélagsins geti kallað á að farið sé lengra en lagarammi og læknisfræðileg rök kveða á um.

Opna nýja frjó­semis­mið­stöð á haust­mánuðum

Á haustmánuðum verður opnuð ný frjósemismiðstöð á Íslandi. Miðstöðin hefur fengið nafnið Sunna – frjósemismiðstöð og verður rekin af hjónunum Þóri Harðarsyni, sérfræðingi í frjósemi og kennara við lífeðlisfræðideild Háskóla Íslands, og Ingunni Jónsdóttur, fæðingar- og kvensjúkdómalækni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×