Lífið

Auður segist hafa trú á sér þrátt fyrir allt

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Auðunn Lúthersson, sem kallar sig Auður, segir samfélagmiðla hafa áhrif á andlega líðan sína.
Auðunn Lúthersson, sem kallar sig Auður, segir samfélagmiðla hafa áhrif á andlega líðan sína. Ari Michelson

Tónlistarmaðurinn Auðunn Lúthersson, betur þekktur sem Auður, segist vera kominn með nóg af samfélagsmiðlum og pressunni sem þeim fylgja. Þetta kemur fram í færslu hjá Auðunni á samfélagsmiðlum.

„Ég er stoltur, spenntur og stressaður. Ég elska að geta átt samskipti við fólk í gegnum tónlistina mína en hata á sama tíma þessa vél sem kallast samfélagsmiðill. Ég verð meðvitaður um ímynd mína, rödd, útlit og hreim, og fer að meta eigið virði út frá fjölda deilinga og „læk“ fylgjenda,“ skrifar Auðunn á einlægum nótum í færslunni.

Auðunn segir líf sitt hafi einkennst af hæðum og lægðum. Þrátt fyrir erfið ár hefur hann trú á sjálfum sér og tónlist sinni.

„Ég hef glímt við andleg veikindi, átröskun, áfallastreituröskun og „fórnarlambs hugarfar“ sem hefur haldið aftur að mér að fá að vaxa sem einstaklingur. Ég er stoltur af manneskjunni sem ég er. Stoltur af starfi mínu og þakka öllum sem hafa stutt mig. Ég er tilbúinn fyrir næsta kafla og finn í hjarta mínu að tónlistin mun leiða mig áfram.“

Heppinn að hafa fæðst í Bandaríkjunum

Auðunn er búsettur í Los Angeles þar sem hann vinnur við lagasmíðar og hljóðupptökur.

Á miðnætti gaf hann sitt annað lag undir listamannsnafninu Luthersson Reel in. Lagið er samið af Auðunni sjálfum ásamt franska tónlistarmanninum Elias Abid og breska listamanninum Matthew Harris. 

„Lagið fjallar um aðskilnað, bæði inn á við og út á við. Þessi tilfinning að fjarlægjast einhverjum aðstæðum til þess að geta unnið úr innri togstreitu,“ segir í tilkynningu frá Auðunni.

„Ég er búinn að vinna hörðum höndum að þessu lagi og fleirum sem eru á ensku. Ég finn að mér finnst orðið miklu þægilegra að semja á ensku þegar er hérna úti. Ég er rosa heppnin að hafa fæðst hérna í Bandaríkjunum og vera með tvöfaldan ríkisborgararétt og get unnið hér að vild.“

Lagið Reel In má hlusta á í spilaranum hér að neðan:


Tengdar fréttir

Auður kynnir kærustuna og styrkir Palestínu með nýju lagi

Tónlistarmaðurinn Auðunn Lúthersson, betur þekktur sem Auður, gaf út lagið Í hjartanu yfir hafið í dag og rennur allur ágóði af streymi lagsins til góðgerðarmála í Gasa. Helmingur ágóðans fer til félagsins Ísland Palestína og hinn til Lækna án landamæra.

„Ég hlakka til að sýna henni litla landið mitt“

Tónlistarmaðurinn Auðunn Lúthersson, þekktur sem Auður, hlakkar til að verja jólunum í faðmi fjölskyldunnar og kærustunnar Cassöndru á Íslandi. Hann treður upp í Iðnó 16. desember en þetta er í fyrsta sinn sem hann spilar opinberlega á Íslandi eftir að hafa dregið sig í hlé um langt skeið. Auðunn er viðmælandi í Jólamola dagsins.

Auður fann ástina erlendis

Tónlistarmaðurinn Auðunn Lúthersson, þekktur undir listamannanafninu Auður, er kominn á fast. 

Auður heldur tónleika hér á landi í fyrsta sinn í rúm tvö ár

Tónlistarmaðurinn Auðunn Lúthersson, Auður, mun halda tónleika í Iðnó í desember. Þetta er í fyrsta sinn sem hann heldur tónleika hérlendis frá því að hann dró sig úr sviðsljósinu eftir að hafa verið sakaður um kynferðisbrot gagnvart nokkrum konum fyrir rúmum tveimur árum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.