Lífið samstarf

Lík­lega best geymda leyndar­málið á meðal kylfinga

Golfvöllur vikunnar
Háagerðisvöllur, sem er skammt frá Skagaströnd, var tekinn í notkun vorið 1991 og er 9 holu völlur, par 36 (72). Völlurinn hentar bæði byrjendum og reyndari kylfingum. 
Háagerðisvöllur, sem er skammt frá Skagaströnd, var tekinn í notkun vorið 1991 og er 9 holu völlur, par 36 (72). Völlurinn hentar bæði byrjendum og reyndari kylfingum. 

Golfklúbbur Skagastrandar var stofnaður árið 1985 en Háagerðisvöllur var tekinn í notkun vorið 1991. Völlurinn, sem er 4 km norðan við Skagaströnd, er 9 holur og par 36 (72). Hann hentar byrjendum jafnt sem reyndari kylfingum. Hönnuður vallarins er Hannes Þorsteinsson.

Í sumar ætlum við að kynnast nokkrum af þeim fjölda spennandi golfvalla sem hægt er að finna víða um land og gaman væri að prófa í sumarfríinu en hægt er að leika golf á yfir 60 völlum hér á landi. Háagerðisvöllur er golfvöllur vikunnar á Vísi.

Séð upp braut 9. Spákonufell í baksýn.

Klettar og mishæðótt landslag frá náttúrunnar hendi gera brautirnar krefjandi og fjölbreyttar. Á góðum degi er frábært útsýni út á Húnaflóa og yfir á Strandir.

Við hverja braut er skilti með upplýsingum um brautina ásamt smá fróðleik.

Í bók sinni Golfhringir á Íslandi, sem kom út árið 2002, segir Edwin Roald Rögnvaldsson m.a. að Háagerðisvöllur sé líklega best geymda leyndarmálið á meðal kylfinga á Íslandi

Hann tekur sem dæmi fimmtu braut, sem er par 5, og er að hans mati besta golfbrautin á Skagaströnd. „Til að komast inn á flöt í öðru höggi þarf tvö fullkomin högg. Þær eru fáar, par 5-holurnar, sem falla jafnvel í landslagið, alveg frá teig til flatar. Landslagið í brautinni sjálfri er frá náttúrunnar hendi – öldótt og óreglulegt – sem er allt of fátítt á golfvöllum sem byggðir hafa verið í seinni tíð.“

Við teigana á hverri braut eru skilti með upplýsingum um brautina og annar fróðleikur.

Mynd 6: Fjórða flötin er í skemmtilegu náttúrulegu umhverfi.

Á Skagaströnd er ýmis þjónusta í boði. Má þar nefna Harbour restaurant, Salthús gistiheimili, notalega sundlaug, leigu á kajökum og Spákonuhof þar sem hægt er að fræðst um Þórdísi spákonu og fá framtíðarspá. Einnig er gott tjaldsvæði á staðnum og skemmtilegar gönguleiðir á svæðinu, m.a. upp á Spákonufell sem er 640 m hátt.

Á fögrum sólardegi. Golfarar að ljúka leik.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.