Gríðarlegar sviptingar á undanmóti Íslandsmótsins í netskák Atli Már Guðfinsson skrifar 26. ágúst 2024 11:27 Björn Þorfinnsson tók þátt í beinni lýsingu á undanmótinu á Chess After Dark og spáir því að þeir þrír sem komust áfram verði sýnd veiði en ekki gefin á Íslandsmótinu í netskák. Skákmennirnir Dagur Arngrímsson, Guðmundur Gíslason og Símon Þórhallsson höfnuðu í gærkvöld í þremur efstu sætum undankeppninnar fyrir Íslandsmótið í netskák og fylla því flokk 16 keppenda á útsláttarmótinu en 13 keppendum hafði áður verið boðið til leiks. „
Sviptingarnar í þessu móti voru gríðarlegar og úrslitin í raun og veru afar óvænt,“ segir Björn Þorfinnsson, sem lýsti mótinu í beinu streymi á Chess After Dark ásamt þeim CAD-bræðrum Birki Karli Sigurðssyni og Leifi Þorsteinssyni. „Tveir margfaldir Íslandsmeistarar í netskák, Arnar Gunnarsson og Davíð Kjartansson, þurftu til að mynda að bíta í það súra epli að komast ekki áfram í úrslitin,“ heldur Björn áfram en sjálfur mun hann keppa á mótinu sem einn þeirra þrettán sem boðið var sæti. Dagur Arngrímsson stóð uppi sem sigurvegari í gærkvöld. Símon Þórhallsson var í 2. sæti og Guðmundur Gíslason í því þriðja. „Verðlaunahafarnir voru vel að þessu komnir,“ segir Björn um þá Dag, sem stóð uppi sem sigurvegari, Símon sem hafnaði í öðru sæti og Guðmund sem náði því þriðja. „Dagur Arngrímsson tefldi til að mynda af krafti allt mótið og vestfirska kempan, Guðmundur Gíslason, náði að hrista af sér erfiða byrjun og komst í úrslitin með mikilli baráttu og útsjónarsemi. Maður mótsins var þó eflaust Bosníuvinurinn og Akureyringurinn Símon Þórhallsson, sem tefldi af ótrúlegum krafti og listfengi og skaut mun stigahærri mönnum ref fyrir rass,“ segir Björn og bætir við að spennandi verði að sjá hvernig þremenningarnir spjara sig í úrslitunum. „Og ég er fullviss um að þar verða þeir sýnd veiði en ekki gefin.“ Í fréttt Skák.is er þess getið að fyrirfram hefðu flestir „veðjað á annaðhvort Dag Ragnarsson eða Arnar Gunnarsson enda eru þeir stigahæstir á chess.com skákþjóninum, báðir yfir 2.700 stigum. Þeir hafi hins vegar ekki komist áfram en Arnar þó líklegast hafa sloppið inn ef Róbert Lagerman hefði „hjálpað honum í lokaumferðinni“ og segja megi að „Róbert hafi því verið örlagavaldur fyrir Arnar, leggur hann að velli (eins og á Borgarskákmótinu) og tapar svo í lokaumferðinni gegn hans helsta andstæðing.“
Skák Tengdar fréttir Ljóngrimmir keppendur mætast á Íslandsmótinu í netskák „Ég myndi segja að stemningin sé mjög mikil og góð enda eru bara allir sterkustu skákmenn landsins að taka þátt í þessu móti,“ segir Birkir Karl Sigurðsson, mótastjóri Íslandsmótsins í netskák 2024, sem hefst á sunnudagskvöld. 22. ágúst 2024 13:34 Mest lesið Haaland sakaður um að meiða lukkudýrið Enski boltinn Tugþúsundir fögnuðu titlinum í Newcastle Enski boltinn Eini þjálfarinn sem hefur orðið deildarmeistari og dottið strax út Körfubolti Rashford lauk ævintýri Stefáns Teits og félaga Enski boltinn Stoppaði skyndisókn og stóð á haus Fótbolti Þættirnir um Arnar og Bjarka byrja í kvöld: „Þetta er búið að vera ævintýri“ Fótbolti Dagur Dan fagnaði eftir skelfileg mistök Fótbolti Svefnlítill Emil sagði stopp en var stressaður fyrir kveðjustundinni Körfubolti Jafngildi 20 Þjóðarhalla við Hringbraut svo ein á að geta risið í Laugardal Sport „Flotti fíni Garðabær á móti Breiðholtinu“ Körfubolti
Ljóngrimmir keppendur mætast á Íslandsmótinu í netskák „Ég myndi segja að stemningin sé mjög mikil og góð enda eru bara allir sterkustu skákmenn landsins að taka þátt í þessu móti,“ segir Birkir Karl Sigurðsson, mótastjóri Íslandsmótsins í netskák 2024, sem hefst á sunnudagskvöld. 22. ágúst 2024 13:34