Lífið

Sjáðu myndirnar frá Ung­frú Ís­land

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Keppendur í Ungfrú Ísland skinu skært á sviðinu í Gamla bíói síðastliðið miðvikudagskvöld.
Keppendur í Ungfrú Ísland skinu skært á sviðinu í Gamla bíói síðastliðið miðvikudagskvöld. Arnór Trausta

Húsfyllir var á Ungfrú Ísland sem fór fram með pompi og prakt í Gamla bíói síðastliðið miðvikudagskvöld. Hin átján ára Sóldís Vala Ívarsdóttir stóð uppi sem sigurvegari og mun keppa fyrir hönd Íslands í Miss Universe sem fram fer í Mexíkó síðar á árinu. 

Tuttugu og fimm keppendur tókust á um titilinn eftirsótta og létu ljós sitt skína á sviðinu klæddar glitrandi kjólum og bleikum sundfatnaði í von um að heilla dómarana.

Dómnefndin í ár var skipuð fimm stórstjörnum þeim Friðrik Ómari Hjörleifssyni, tónlistarmanni, Örnu Ýr Jónsdóttur, fegurðardrottningu og hjúkrunarfræðinema, Guðmundi „Gummi Kíró“ Birki Pálmasyni, kírópraktor og áhrifavaldi, Gerði Huld Arinbjarnardóttur, viðskiptakonu og eiganda kynlífstækjaverslunarinnar Blush og Kolbrúnu Pálínu Helgadóttur, fegurðardrottningu og athafnakona.

Kynnir kvöldins, skemmtistýran Eva Ruza, sá um að skemmta keppendum í sal og ekki síður áhorfendum heima fyrir en þetta er í níunda sinn sem Eva sér um að vera kynnir keppninnar.

Arnór Traustason ljósmyndari myndaði stúlkurnar fyrir keppni og á lokakvöldinu sjálfu.

.Arnór Trausti
Arnór Trausti
Gleðin leynir sér ekki.Arnór Trausti
Arnór Trausti
Arnór Trausti
Ungfrú Grindavík hlaut titilinn Miss supranational 2024.Arnór Trausti
Arnór Trausti
Arnór Trausti
Arnór Trausti
Arnór Trausti
Arnór Trausti
Arnór Trausti
Arnór Trausti
Arnór Trausti
Arnór Trausti
Arnór Trausti
Arnór Trausti
Arnór Trausti
Arnór Trausti
Arnór Trausti
Arnór Trausti
Arnór Trausti
Arnór Trausti
Arnór Trausti
Arnór Trausti
Arnór Trausti
Arnór Trausti
Arnór Trausti
Arnór Trausti
Arnór Trausti
Arnór Trausti

Horfa má á fleiri myndbrot á sjónvarpsvef Vísis og keppnina í heild sinni í spilaranum fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.