Lífið samstarf

Bylgjulestin á Kótelettunni

Byljgulestin
Bylgjulestin lætur sig ekki vanta þar sem von er á skemmtilegheitum og dembir sér á Selfoss um helgina.
Bylgjulestin lætur sig ekki vanta þar sem von er á skemmtilegheitum og dembir sér á Selfoss um helgina.

Bylgjulestin heldur áfram að bruna um landið og verður í beinni frá Selfossi um helgina.

Mikið verður um að vera á Selfossi en fjölskylduhátíð Kótelettunnar er komin í gang, fjórtánda árið í röð og er ókeypis inn. Hátíðin stendur alla helgina og verður Bylgjan í beinni á laugardaginn. 

Dagskráin er glæsileg, meðal annars Stóra Grillsýningin, Veltibíllinn og Styrktarklettur SKB. Tónlistin verður í öndvegi á Kotilegttunni sem fyrr en á Music Festival Kótelettunnar koma meðal annars fram í dag, DJ Búni, Stuðmenn, SSSÓL, Páll Óskar, Aron Can, Una Torfa, GDRN, Stjórnin, Hr. Eydís. JóiPé X Króli, Gústi B. Á morgun, laugardag koma meðal annars fram DJ. Dóra Júlía, Klara Einars, NUSSUN, Írafár, Stuðlabandið, FM95BLÖ, Emmsé Gauti, Júlí Heiðar og Daniil en nánar er hægt að sjá tónleikadagskrána hér. Þá verður enginn svangur á Kótelettunni en BBQ festivalið verður á sínum stað á morgun.

Bylgjulestin tekur að vanda púlsinn á gestum og gangandi og fær áhugavert fólk til sín í spjall.

Kíktu við og taktu þátt í fjörinu! Gríptu með þér hollustubita frá MUNA, skoðaðu glæsilega bíla frá bílaumboðinu Öskju, svalaðu þorstanum með Appelsíni án sykurs, gæddu þér á góðgæti frá Nóa Síríus og sláðu í gegn um land allt með Golfsambandi Íslands og Bylgjulestinni.

Næstu stopp Bylgjulestarinnar:

13. júlí – Selfoss

20. júlí – Hljómskálagarðurinn í Reykjavík

27. júlí - Hafnarfjörður






Fleiri fréttir

Sjá meira


×