Lífið

Sauð upp úr í stjörnufansi á golfmóti Coolbet

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Sparnaður var ekki í fyrirrúmi við skipulagningu mótsins.
Sparnaður var ekki í fyrirrúmi við skipulagningu mótsins. Vísir/Samsett

Coolbet efndi til golfmóts á Grafarholtsvelli í blíðviðrinu á föstudaginn síðasta og var öllu til tjaldað. Stjörnur af öllum sviðum íslensks þjóðfélags voru viðstaddar og voru vellystingar í fyrirrúmi. Heimildir Vísis herma að soðið hafi upp úr milli tveggja keppenda í veislunni sem haldin var eftir að mótinu lauk. 

Veðmálafyrirtækið Coolbet nýtur mikilla vinsælda meðal ungra karlmanna hér á landi. Það er ekki síst vegna þess hve margir áhrifavaldar eru tilbúnir að auglýsa vefsíðuna, sem má ekki auglýsa hér á landi. Það gera áhrifavaldarnir með því að klæðast fatnaði merktum fyrirtækinu, minnast á fyrirtækið í hlaðvörpum sínum eða státa sig af vel heppnuðum veðmálum. 

Viðkomandi áhrifavaldar bera þó litla áhættu af veðmálunum sjálfir heldur fá inneignir hjá Coolbet til að leika sér með gegn auglýsingum á samfélagsmiðlum. 

Í þetta skiptið bauð Coolbet fyrrnefndum áhrifavöldum og fleirum þjóðþekktum einstaklingum til golfmóts. Mátti bæði sjá vana kylfinga og aðra óvanari sem höfðu ekkert á móti því að gera sér glaðan dag þar sem allt var í boði hússins.

Afþreying og veitingar voru ekki af lakara lagi. Á einum teignum var Sigga Klingenberg, sem þekkt er fyrir stjörnuspár sínar, með bás og bauð gestum upp á lófalestur. Á öðrum var hægt að fá klippingu og rakstur samkvæmt nýjustu tísku og á enn öðrum var húðflúrari að störfum.

Á enn öðrum teignum var svo hægt að spreyta sig í pílukasti við Grindvíkinginn Matthías Örn Friðriksson, margfaldan Íslandsmeistara í pílukasti.

Arnór Sigurðsson, Andri Lucas Guðjohnsen, Patrik Snær Atlason, Ágúst Beinteinn Árnason og Páll Orri PálssonCoolbet

Fínt kampavín, bjór og smáréttir voru aðgengilegir hvarvetna og eftir að mótinu lauk var haldin veisla í gamla Nasa-salnum við Austurvöll og svo spilaður póker í boði fyrirtækisins. Langflestir skemmtu sér vel samkvæmt heimildum fréttastofu en þó voru tveir sem létu hnefana tala á tímapunkti. Þeir eru þó ekki meðal stjarnanna sem koma fyrir í þessari frétt.

Meðal keppenda voru athafnamenn, tónlistarmenn, íþróttamenn og fulltrúar fleiri framastétta á Íslandi. Ingólfur Þórarinsson, Ingó veðurguð, var á svæðinu ásamt Gumma Emil einkaþjálfara. Körfuboltamennirnir Jón Arnór Stefánsson og Martin Hermannsson mættu ásamt þjálfaranum Finni Frey Stefánssyni.

Patrik Snær Atlason, betur þekktur sem PrettyBoiTjokkó, mætti á hestbaki og Hákon Rafn Valdimarsson landsliðsmarkvörður var sömuleiðis í stuði. Telja mætti upp marga fleiri en myndir segja meira en þúsund orð. Þær má finna að neðan.

Athafnamaðurinn Simmi Vill gerir sig líklegan.Coolbet
Ingó veðurguð og Ríkharð Óskar Guðnason á teignum.Coolbet
Bjarki Valur Viðarsson, annar götustráka, og Viktor Orri Pétursson.Coolbet
Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson létu sig ekki vanta.Coolbet
Herbert Guðmundsson tók lagið.Coolbet
Kristmundur Axel var í góðu skapi.Coolbet
Hákon Rafn Valdimarsson landsliðsmarkvörður og leikmaður Brentford í ensku úrvalsdeildinni var á svæðinu.Coolbet
Patrik Snær Atlason var með alvöru innkomu á völlinn.Coolbet
Sigga Klingenberg las í lófa á milli sveiflna.Coolbet
Ingó veðurguð í Nasa-salnum.Coolbet
Gummi Emil orkumikill að vana.Coolbet
Öllu var til tjaldað þegar kom að veitingum.Coolbet
Hörður Magnússon les upp stigin og Kjartan Henry Finnbogason er honum til halds og trausts.Coolbet






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.