Lífið

Kevin Costner opnar sig um slúðrið

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Kevin Costner ræðir ástarmálin hispurslaust.
Kevin Costner ræðir ástarmálin hispurslaust. Cindy Ord/Getty Images)

Kevin Costner hefur opnað sig um þrálátan orðróm þess efnis að hann sé nú að hitta söngkonuna Jewel. Stutt er síðan leikarinn skildi að borði og sæng við tískuhönnuðinn Christine Baumgartner og hefur hann nokkrum sinnum sést á opinberum vettvangi með Jewel.

„Ég og Jewel erum vinir, við höfum aldrei deitað,“ segir leikarinn en hann mætti í hlaðvarpsþátt Howard Stern og var þar spurður út í orðróminn um ástarsambandið. „Hún er einstök og ég vil ekki að þessi orðrómur eyðileggi vináttu okkar, því það er það sem þetta er.“

Hann lýsir því í þættinum að hann hafi kynnst Jewel á fundi sameiginlegra vina á einkaeyju í eigu milljarðamæringsins Richard Branson í desember 2023. Hann segist skyndilega hafa verið fráskilinn, einhleypur faðir og því loksins þekkst boð Branson. Sá hafi boðið honum á eyjuna í mörg ár, án árangurs.

Orðrómurinn fór á kreik eftir að myndir birtust af þeim saman á eyjunni, sem er hluti af Bresku jómfrúareyjunum. Þar hélt Costner söngkonunni þéttingsfast upp að sér, svo þéttingsfast að slúðurmiðlar heimsins voru fljótir að leggja tvo og tvo saman.

Í umfjöllun bandaríska slúðurmiðilsins PageSix er þess getið að þau hafi flogið saman til og frá eyjunni. Branson hafi gert sitt allra besta til þess að koma þeim saman. Jewel hafi sagt fátt um orðróminn, en hrósað leikaranum í hástert.

Costner og Baumgartner skildu að borði og sæng í maí í fyrra. Þau höfðu verið gift í átján ár. Þau eiga þrjú börn saman. Jewel var áður með kúrekanum Ty Murray í sex ár frá 2014 til 2008. Þau eiga einn son, hinn tólf ára gamla Kase.


Tengdar fréttir

Segir Costner vísa börnunum á dyr

Christine Baumgartner, hönnuður og fyrrum eiginkona leikarans Kevin Costner, segir að Costner fari nú fram á að bæði hún og þrjú börn þeirra yfirgefi heimili þeirra við Santa Barbara í Kaliforníu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×