Öruggur heimasigur og sex mörk skoruð í opnunarleik EM Ágúst Orri Arnarson skrifar 14. júní 2024 21:00 Florian Wirtz opnaði markareikning mótsins strax í upphafi leiks. Shaun Botterill/Getty Images Þýskaland vann afar öruggan 5-1 sigur gegn Skotlandi í opnunarleik Evrópumótsins. Florian Wirtz kom heimamönnum yfir strax á 10. mínútu leiks. Boltanum var skipt yfir á hægri kantinn til Joshua Kimmich sem fann Wirtz í fínu plássi rétt fyrir utan teig. Wirtz var snöggur að hleypa skotinu af, markmaðurinn náði snertingu en varði boltann í stöngina og inn. Skömmu síðar átti Kai Havertz gott hlaup inn fyrir varnarlínu Skota og sendingin frá Gundogan rataði beint fyrir hann. Havertz sneri á varnarmann sem kastaði sér fyrir, lagði boltann út á Jamal Musiala sem þrumaði boltanum í þaknetið og tvöfaldaði forystu heimamanna. Á 25. mínútu flautaði dómarinn og benti á vítapunktinn, en eftir myndbandsskoðun kom í ljós að brotið átti sér stað utan teigs. Florian Wirtz skaut að marki en markmaðurinn greip skot hans örugglega. Vítið sem þeir vildu kom á 44. mínútu þegar Ryan Porteous renndi sér með sólann á undan í Ilkay Gundogan. Porteous fékk rautt spjald og Kai Havertz stillti sér upp fyrir spyrnuna. Havertz steig á punktinn og skoraði af öryggi. Image Photo Agency/Getty Images Hann skoraði af miklu öryggi og sendi markmanninn í rangt horn. Hálfleikstölur 3-0 heimamönnum í vil. Í seinni hálfleik voru Skotar manni færri, þeir reyndu bara að láta tímann líða og fá ekki á sig fleiri mörk. Það gekk fyrst um sinn en svo kom Niclas Fullkrug inn á. Honum var skipt inn á 63. mínútu, fimm mínútum síðar fékk hann boltann fyrir utan vítateig og skaut þrumufleyg í fjærhornið. Algjörlega óverjandi skot og glæsilegt fjórða mark. Niclas Fullkrug átti frábæra innkomu og kom boltanum tvisvar í netið þó aðeins eitt mark hafi staðið. Kevin Voigt/GettyImages Fullkrug setti boltann aftur í netið á 76. mínútu en var dæmdur rangstæður. Skotar fengu mark til sárabóta þegar Antonio Rudiger setti boltann óvart í eigið net á 87. mínútu. Rudiger var afskaplega óheppinn en stýrði boltanum í netið af mikilli snilli. Emre Can kórónaði svo frábæran leik Þjóðverja með marki á þriðju mínútu uppbótartíma. Fékk boltann rétt fyrir utan teig, krullaði framhjá markverðinum og tryggði 5-1 sigur heimamanna. Þýskaland leikur næst gegn Ungverjalandi og Skotland á næst leik við Sviss, miðvikudaginn 19. júní. EM 2024 í Þýskalandi