Lífið samstarf

Bylgjulestin af stað - fyrsta stopp Vest­manna­eyjar

Bylgjan

Bylgjulestin er að leggja af stað og mun ferðast um landið, hitta hlustendur og taka þátt í fjörinu á hverjum laugardegi í beinni í allt sumar.

Lestarstjóri sumarsins er Bragi Guðmunds og með honum verða Kristín Ruth, Svali og Agnes Arnars. Bylgjulestin verður í beinni útsendingu á Bylgjunni alla laugardaga í júní og júlí. Fyrsta stoppistöðin er Sjómannadagshátíðin í Vestmanneyjum laugardaginn 1.júní.

Það er alltaf stuð þar sem Bylgjulestin stopparHulda Margrét

Glæsileg dagskrá er í Eyjum alla helgina

Á morgun er fjölskyldudagskrá allan daginn með dorgveiðikeppni, kappróður, koddaslagur, tuðrukvartmíla, lokahlaup, sjómannaþraut, foosballvöllur verður á staðnum og margt margt fleira.

Bílasýning frá bílaumboðinu Öskju á Kiwanis planinu, blaðrarinn, hoppukastalar, ís frá Kjörís og matarvagnar.

Áfangastaðir lestarinnar í sumar eru:

1. júní Vestmanneyjar, Sjómannadagshátíð

8. júní Blönduós

15. júní Þingvellir, 80 ára afmæli lýðveldisins

22. júní Eyrabakki, Jónsmessuhátíð

29. júní Borgarnes, Brákarhátíð

6. júlí Akureyri, Pollamót

13. júlí Selfoss, Kótelettan

20. júlí Hljómskálagarður, Götubitahátíð

27. júlí Hafnarfjörður, Í hjarta Hafnarfjarðar

Skemmtu þér með Bylgjunni í allt sumar í samstarfi við Muna. Bílaumboðið Öskju, Appelsín án sykurs, Nóakropp og Golfsamband Íslands






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.