Lífið

Innipúkinn farinn að taka á sig mynd

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ásgeir Guðmundsson einn skipuleggjenda Innipúkans segir upplifun sína vera þá að menningarviðburðir séu í aukahlutverki.
Ásgeir Guðmundsson einn skipuleggjenda Innipúkans segir upplifun sína vera þá að menningarviðburðir séu í aukahlutverki. Brynjar Snær

Páll Óskar og Skrattar snúa bökum saman og koma í fram á tónlistarhátíðinni Innipúkanum um verslunarmannahelgina. Meðal annara listamanna sem eru tilkynnt til leiks í fyrstu dagskrártilkynningu hátíðarinnar eru Bjartar sveiflur, Ex.Girls, Hatari, Hipsumhaps, Inspector Spacetime, Lúpína, Una Torfa og Vök.

Tónlistarhátíðin Innipúkinn fer fram í miðborg Reykjavíkur í 21. sinn um verslunarmannahelgina 2. til 4. ágúst.

Aðaldagskrá Innipúkans fer að sjálfsögðu fram innandyra eins og hefð er fyrir. Hátíðin fer þriðja árið í röð fram fram í Gamla bíó og Röntgen þar sem boðið verður upp á tvö tónleikasvið ásamt hátíðarstemningu milli staðana í Ingólfsstræti alla helgina.

Margir ástsælustu listamenn þjóðarinnar hafa komið fram á hátíðinni síðustu tuttugu ár og má þar nefna Bríet, Daði Freyr, Emmsjé Gauti, Eyjólfur Kristjánsson, FM Belfast, GDRN, Hjaltalín, Hjálmar, Lay Low, Magga Stína, Megas, Mínus, Mugison, Of Monsters and Men, Ólafur Arnalds, Ómar Ragnarsson, Raggi Bjarna, Sigga Beinteins, Sóley, Svala, Trabant og Þú & ég.

Það er alltaf gott veður á Innipúkanum - og bara gaman!

Innipúkinn 2024 - Hljómsveitir og listamenn

  • Páll Óskar
  • Bjartar sveiflur
  • Ex.Girls
  • Hasar
  • Hatari
  • Hipsumhaps
  • Hekla
  • Hermigervill
  • Inspector Spacetime
  • Kött Grá Pjé & Fonteki Simbol
  • Lúpína
  • Skrattar
  • Una Torfa
  • Úlfur Úlfur
  • Volruptus
  • Vök

Tilkynnt verður um fleiri listamenn, hljómsveitir og plötusnúða á næstu vikum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×