Lífið

„Ísbirnirnir voru rétt hjá okkur“

Helena Rakel Jóhannesdóttir og Jón Grétar Gissurarson skrifa
Lyktin af hvalnum lokkar til sín ísbirni. 
Lyktin af hvalnum lokkar til sín ísbirni.  RAX

Ljósmyndarinn Ragnar Axelsson segist sjaldan eða aldrei hafa komist í jafn mikið návígi við ísbirni eins og þegar hann heimsótti Barrow í Alaska árið 2023, en Barrow er nyrsta byggð Norður Ameríku.

Ísbirnirnir runnu á lyktina af hvalshræi þar sem enn var eitthvað af kjöti á beinunum fyrir þá að naga. Þar sem þeir höfðu nóg að borða stafaði minni hætta af þeim en ella, en ef ísbjörn ákveður að ráðast á mann þá er eins gott að vera vopnaður því ísbirnir hlaupa hraðar en fólk og eru mun sterkari.

Ísbirnir að leik. RAX

Það er öruggara að þeir leiki við hvorn annan en við mannfólk. Ragnar sagðist hafa talið sextán ísbirni á hafísnum daginn sem hann kom að hvalshræinu. 

Söguna um ferðina til Barrow má sjá í nýjasta þætti RAX Augnablik í spilaranum hér að neðan.

Fleiri þætti úr smiðju RAX má sjá á sjónvarpsvef Vísis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×