Lífið

Oppen­heimer hlut­skörpust á Óskars­verð­­launa­há­­tíðinni

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Þetta voru önnur Óskarsverðlaun Emmu Stone sem vann einnig fyrir La La Land. Þá hreppti Robert Downey Jr. loks verðlaunin eftir að hafa verið tilnefndur tvisvar áður.
Þetta voru önnur Óskarsverðlaun Emmu Stone sem vann einnig fyrir La La Land. Þá hreppti Robert Downey Jr. loks verðlaunin eftir að hafa verið tilnefndur tvisvar áður. Getty/FilmMagic/Jeff Kravitz

Oppenheimer var sigurvegari kvöldsins á Óskarsverðlaunahátíðinni í gær en myndin hreppti samtals sjö verðlaun, meðal annars fyrir bestu mynd, besta leikstjóra og besta karlleikara í aðalhlutverki.

Christopher Nolan hlaut verðlaunin fyrir bestu leikstjórn og Cillian Murphy var valinn besti karlleikari í aðalhlutverki og þá skaut Robert Downey Jr. mönnum á borð við Robert De Niro og Ryan Gosling ref fyrir rass og tók styttuna fyrir karlleikara í aukahlutverki.

Emma Stone hlaut verðlaunin fyrir bestu leikkona í aðalhlutverki fyrir Poor Things og Da'Vine Joy Randolph var verðlaunuð sem besta leikkona í aukahlutverki fyrir The Holdovers.

Þá unnu Billie Eilish og bróðir hennar Finneas verðlaunin fyrir besta upprunalega lagið fyrir What Was I Made For? úr myndinni Barbie. Þetta er í annað sinn sem systkinin vinna til Óskarsverðlauna en þau unnu einnig fyrir Bond-lagið No Time to Die.

Billie og Finneas Eilish voru sátt með sitt.Getty/FilmMagic/Jeff Kravitz

Helfarar-myndin The Zone of Interest var valin besta erlenda myndin og 20 Days in Mauripol, um innrás Rússa í Úkraínu, besta heimildarmyndin.

Aðstandendur verðlaunamynda á borð við Killers of the Flower Moon, Maestro og Past Lives fóru tómhentir heim.

Jimmy Kimmel var kynnir kvöldsins og skaut meðal annars á Donald Trump, sem hafði krafist þess að hann yrði settur af sem kynnir. „Er ekki komið fram yfir fangelsistímann þinn?“ sagði Kimmel.


Að neðan má sjá lista yfir tilnefnda og sigurvegara kvöldsins:


Besta kvikmynd

  • American Fiction
  • Anatomy of a Fall
  • Barbie
  • The Holdovers
  • Killers of the Flower Moon
  • Maestro
  • Oppenheimer
  • Past Lives
  • Poor Things
  • The Zone of Interest

Besti leikari í aðalhlutverki

  • Bradley Cooper – Maestro
  • Colman Domingo – Rustin
  • Paul Giamatti – The Holdovers
  • Cillian Murphy – Oppenheimer
  • Jeffrey Wright – American Fiction

Besta leikkona í aðalhlutverki

  • Annette Bening – Nyad
  • Lily Gladstone – Killers of the Flower Moon
  • Sandra Hüller – Anatomy of a Fall
  • Carey Mulligan – Maestro
  • Emma Stone – Poor Things

Besti leikari í aukahlutverki

  • Sterling K Brown – American Fiction
  • Robert De Niro – Killers of the Flower Moon
  • Robert Downey Jr – Oppenheimer
  • Ryan Gosling – Barbie
  • Mark Ruffalo – Poor Things

Besta leikkona í aukahlutverki

  • Emily Blunt – Oppenheimer
  • Danielle Brooks – The Color Purple
  • America Ferrera – Barbie
  • Jodie Foster – Nyad
  • Da’Vine Joy Randolph – The Holdovers

Besti leikstjóri

  • Anatomy of a Fall – Justine Triet
  • Killers of the Flower Moon – Martin Scorsese
  • Oppenheimer – Christopher Nolan
  • Poor Things – Yorgos Lanthimos
  • The Zone of Interest – Jonathan Glazer

Besta teiknaða mynd

  • The Boy and the Heron
  • Elemental
  • Nimona
  • Robot Dreams
  • Spider-Man: Across the Spider-Verse

Besta handrit byggt á áður útgefnu efni:

  • American Fiction
  • Barbie
  • Oppenheimer
  • Poor Things
  • The Zone of Interest

Besta frumsamda handrit:

  • Anatomy of a Fall
  • The Holdovers
  • Maestro
  • May December
  • Past Lives

Besta kvikmyndataka:

  • El Conde
  • Killers of the Flower Moon
  • Maestro
  • Oppenheimer
  • Poor Things

Besta búningahönnun:

  • Barbie
  • Killers of the Flower Moon
  • Napoleon
  • Oppenheimer
  • Poor Things

Besta heimildarmynd:

  • Bobi Wine: The People’s President
  • The Eternal Memory
  • Four Daughters
  • To Kill a Tiger
  • 20 Days in Mariupol

Besta heimildarstuttmynd:

  • The ABCs of Book Banning
  • The Barber of Little Rock
  • Island in Between
  • The Last Repair Shop
  • Nǎi Nai & Wài Pó

Besta klipping:

  • Anatomy of a Fall
  • The Holdovers
  • Killers of the Flower Moon
  • Oppenheimer
  • Poor Things

Besta erlenda kvikmynd:

  • Io Capitano (Ítalía)
  • Perfect Days (Japan)
  • Society of the Snow (Spánn)
  • The Teachers’ Lounge (Þýskaland)
  • The Zone of Interest (Bretland)

Besta hár og förðun:

  • Golda
  • Maestro
  • Oppenheimer
  • Poor Things
  • Society of the Snow

Besta frumsamda tónlist:

  • American Fiction
  • Indiana Jones and the Dial of Destiny
  • Killers of the Flower Moon
  • Oppenheimer
  • Poor Things

Besta frumsamda lag:

  • The Fire Inside – Flamin’ Hot
  • I’m Just Ken – Barbie
  • It Never Went Away – American Symphony
  • Wahzhazhe (A Song for My People) – Killers of the Flower Moon
  • What Was I Made For? – Barbie

Besta leikmynd:

  • Barbie
  • Killers of the Flower Moon
  • Napoleon
  • Oppenheimer
  • Poor Things

Besta teiknaða stuttmynd:

  • Letter to a Pig
  • Ninety-Five Senses
  • Our Uniform
  • Pachyderme
  • WAR IS OVER! Inspired by the Music of John & Yoko

Besta leikna stuttmynd:

  • The After
  • Invincible
  • Knight of Fortune
  • Red, White and Blue
  • The Wonderful Story of Henry Sugar

Besta hljóð:

  • The Creator
  • Maestro
  • Mission: Impossible – Dead Reckoning Part One
  • Oppenheimer
  • The Zone of Interest

Bestu tæknibrellur:

  • The Creator
  • Godzilla Minus One
  • Guardians of the Galaxy Vol 3
  • Mission: Impossible – Dead Reckoning Part One
  • Napoleon

Tengdar fréttir

Best klæddu stjörnurnar á Óskarnum

Stærstu stjörnur heimsins skína skært í hátískuhönnun á rauða dreglinum í kvöld í tilefni af Óskarsverðlaunahátíðinni. Hátíðin fer nú fram í 96. skipti og er haldin í Dolby leikhúsinu í Hollywood. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.