Lífið

Floyd Mayweather með dóttur sinni í Bláa lóninu

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Floyd Mayweather varð margfaldur heimsmeistari í hnefaleikum.
Floyd Mayweather varð margfaldur heimsmeistari í hnefaleikum. Don Juan Moore/Getty Images

Bandaríski hnefaleikakappinn Floyd Mayweather naut lífsins í Bláa lóninu nýlega. Þar var hann staddur ásamt dóttur sinni Jirah Mayweather.

„Ísmaðurinn á Íslandi,“ skrifar hnefaleikakappinn með myndbandi úr Bláa lóninu sem hann birti á Instagram. Þetta er ekki fyrsta skiptið sem hnefaleikakappinn mætir í Bláa lónið. Þangað mætti hann til að mynda árið 2018 svo athygli vakti.

Mayweather lagði hanskana á hilluna árið 2017. Síðan þá hefur hann reglulega tekið þá upp að nýju, aðallega til þess að mæta YouTube stjörnum líkt og Logan Paul í boxhringnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.