Stormur suðaustantil og slyddu- eða snjóél víða um land Atli Ísleifsson skrifar 27. febrúar 2024 07:15 Hiti verður víða nálægt frostmarki í dag. Vísir/Vilhelm Yfir Austurlandi er nú djúp og víðáttumikil lægð á hreyfingu austur og gengur í kjölfarið í vestanhvassviðri eða -storm suðaustantil. Annars verður hægari norðvestlæg átt og slyddu- eða snjóél víða um landið.
Gular viðvaranir eru í gildi á Austfjörðum vegna hríðar til klukkan 13 og vegna vestan storms á Suðausturlandi til klukkan 18. Má gera ráð fyrir hviðum að 35 metrum á sekúndu þar sem hvassast verður við Öræfajökul. Á Austfjörðum má búast má við lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum, einkum á fjallvegum, en á Suðausturlandi geta aðstæður verið hættulegar fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind. Í hugleiðingum veðurfræðings segir að hiti verði víða nálægt frostmarki. „Dregur smám saman úr vindi og éljum undir kvöld, en kólnar í veðri. Lægðin fjalægist landið seinnipartinn og dregur þá smám saman úr vindi og úrkomu. Á morgun er nálgast önnur lægð sunnan úr hafi og snýst þá í austlæga átt með dáliltum él sunnan- og austantil. Talsvert frost víða á landinu,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Austlæg átt, 8-13 m/s og él suðaustanlands og með suðurströndinni, en annars hægari og bjart með köflum. Frostlaust syðst, en frost annars 1 til 13 stig, kaldast í innsveitum norðantil. Á fimmtudag: Norðan 8-15 m/s, hvassast austast og víða dálítil él, en yfirleitt bjart um sunnanvert landið. Frost víða 0 til 10 stig, en frostlaust syðst. Á föstudag: Norðanstrekkingur eða allhvass með éljum, en bjartviðri sunnan heiða. Talsvert frost á öllu landinu. Á laugardag: Hæg breytileg átt og víða léttskýjað, en norðankaldi og él með austurströninni. Áfram kalt í veðri. Á sunnudag og mánudag: Útlit fyrir austlægar eða breytilegar áttir með úrkomu víða á landinu og hlýnandi veður.
Veður Mest lesið „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Innlent Segir Harris veika á geði Erlent Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Innlent Uppgjör á hægri vængnum: „Ægishjálmur Sjálfstæðisflokksins“ ekki lengur veruleikinn Innlent Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Erlent Mennirnir tveir fundnir Innlent „Óþekku börnin frá Grindavík“ vakti úlfúð Innlent Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Erlent Ávaxtakarfan frumsýnd í Hveragerði Innlent Sagður hafa nauðgað konu fyrir níu árum Innlent Fleiri fréttir Lægð stjórnar veðrinu um helgina Lægðardrag þokast suður Rigning eða slydda norðan- og austanlands Dregur úr vindi og ofankomu Svalt í veðri og gengur í blástur Útlit fyrir áframhaldandi rólegheit Milt veður en lægð nálgast Hægir suðvestanvindar og yfirleitt bjartviðri Allt að 17 stig á Austurlandi Næsta lægð nálgast úr suðvestri Gular viðvaranir í hvassviðris Lægð nálgast landið í nótt og gular viðvaranir á morgun Rigning, slydda og jafnvel snjókoma norðaustanlands Gul viðvörun á Suður- og Suðausturlandi til hádegis Gular viðvaranir vegna storms sunnantil Um sjö stiga frost mældist í Eyjafirði í nótt Þurrt og bjart nokkuð víða Norðanáttum beint til landsins Von á 35 metrum á sekúndu í hviðum á Kjalarnesi Kalt, blautt og hvasst „Þetta er alvöru hret“ Snjókoma á Norðurlandi og ekki mælt með ferðalögum Gular og appelsínugular viðvaranir víða um land Búast við slyddu og snjókomu á fjallvegum Hiti gæti náð tuttugu stigum fyrir austan Hvessir aftur þegar líður á daginn Slær sums staðar í storm norðvestantil Lægð yfir landinu og gul viðvörun á Breiðafirði Bjartur dagur sunnantil og hiti að sextán stigum Spáð mildu veðri í dag Sjá meira