Gular viðvaranir vegna hvassrar norðaustanáttar Atli Ísleifsson skrifar 12. febrúar 2024 07:17 Veðurstofan gerir ráð fyrir að hvassast verði í Öræfum í dag. Vísir/RAX Lægð skammt suðaustur af landinu veldur nokkuð hvassri norðaustanátt með slyddu eða snjókomu í dag, en það rofar til á Suður- og Vesturlandi.
Gular viðvaranir taka eða hafa nú þegar tekið gildi vegna norðaustan hríðar eða hvassviðris á Faxaflóa, Breiðafirði, Vestfjörðum, Norðurlandi eystra, Suðausturlandi og Ströndum og Norðurlandi vestra. Eru þær flestar í gildi fram á kvöld. Er spáð 13 til 23 metrum á sekúndu þar sem hvassast verður í Öræfum. Á vef Veðurstofunnar segir að hiti á landinu í dag verði víða um eða yfir frostmarki. „Norðan strekkingur á morgun, en hvassir vindstrengir við fjöll suðaustanlands. Þurrt sunnan heiða, annars snjókoma eða él. Léttir til um landið vestanvert seint á morgun, kólnandi veður,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Norðan 8-15 m/s og snjókoma eða él, en þurrt sunnan heiða. Léttir til á Suður- og Vesturlandi síðdegis, frost 0 til 5 stig. Á miðvikudag: Suðvestan 3-8, en 8-13 norðvestanlands. Bjart veður og kalt, en dálítil snjókoma vestantil og dregur úr frosti. Á fimmtudag: Hæg vestlæg átt og stöku él. Frost 0 til 10 stig, mildast syðst. Á föstudag: Suðaustanátt og dálitlar skúrir eða él á sunnanverðu landinu, en bjartviðri norðaustanlands. Heldur hlýnandi. Á laugardag: Suðaustanátt og rigning eða slydda, en úrkomulítið á Norður- og Norðausturlandi. Hiti 0 til 7 stig. Á sunnudag: Suðlæg átt, úrkomulítið og milt.
Veður Mest lesið „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Innlent Segir Harris veika á geði Erlent Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Innlent Uppgjör á hægri vængnum: „Ægishjálmur Sjálfstæðisflokksins“ ekki lengur veruleikinn Innlent Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Erlent Mennirnir tveir fundnir Innlent „Óþekku börnin frá Grindavík“ vakti úlfúð Innlent Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Erlent Ávaxtakarfan frumsýnd í Hveragerði Innlent Sagður hafa nauðgað konu fyrir níu árum Innlent Fleiri fréttir Lægð stjórnar veðrinu um helgina Lægðardrag þokast suður Rigning eða slydda norðan- og austanlands Dregur úr vindi og ofankomu Svalt í veðri og gengur í blástur Útlit fyrir áframhaldandi rólegheit Milt veður en lægð nálgast Hægir suðvestanvindar og yfirleitt bjartviðri Allt að 17 stig á Austurlandi Næsta lægð nálgast úr suðvestri Gular viðvaranir í hvassviðris Lægð nálgast landið í nótt og gular viðvaranir á morgun Rigning, slydda og jafnvel snjókoma norðaustanlands Gul viðvörun á Suður- og Suðausturlandi til hádegis Gular viðvaranir vegna storms sunnantil Um sjö stiga frost mældist í Eyjafirði í nótt Þurrt og bjart nokkuð víða Norðanáttum beint til landsins Von á 35 metrum á sekúndu í hviðum á Kjalarnesi Kalt, blautt og hvasst „Þetta er alvöru hret“ Snjókoma á Norðurlandi og ekki mælt með ferðalögum Gular og appelsínugular viðvaranir víða um land Búast við slyddu og snjókomu á fjallvegum Hiti gæti náð tuttugu stigum fyrir austan Hvessir aftur þegar líður á daginn Slær sums staðar í storm norðvestantil Lægð yfir landinu og gul viðvörun á Breiðafirði Bjartur dagur sunnantil og hiti að sextán stigum Spáð mildu veðri í dag Sjá meira