Lífið

„Ég held að fólk ætti að reyna að setja sig í þessi spor“

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Mynd af Taylor Swift sem búin er til með einföldu og aðgengilegu gervigreindarforriti. Kynferðislegar gervigreindarmyndir af henni af svipuðum toga vöktu marga til umhugsunar í síðustu viku.
Mynd af Taylor Swift sem búin er til með einföldu og aðgengilegu gervigreindarforriti. Kynferðislegar gervigreindarmyndir af henni af svipuðum toga vöktu marga til umhugsunar í síðustu viku.

Kynferðislegar myndir af bandarísku poppstjörnunni Taylor Swift, sem skapaðar voru af gervigreind, fóru eins og eldur í sinu um samfélagsmiðla á dögunum. Tæknin hefur þróast á ógnarhraða síðustu misseri og hver sem er getur í raun beitt henni. Talskona Stígamóta segir nýjan veruleika blasa við. 

Mál Taylor Swift, einnar alskærustu stjörnu hins vestræna heims um þessar mundir, vakti mikla athygli nú um mánaðamótin. Niðurstöður rannsóknar á uppruna myndanna voru birtar í fyrradag - flest bendir til þess að þær megi rekja til áskorunar sem gekk milli notenda á vefsíðunni 4Chan, spjallborði þar sem ýmislegt misjafnt hefur grasserað gegnum tíðina. 

Brot úr umfjöllun Íslands í dag um stafrænt kynferðisofbeldi og gervigreind má horfa á hér fyrir neðan.

Notendur hafi þar skorað hver á annan að búa til kynferðislegar og ofbeldisfullar myndir af frægum konum, þar á meðal Swift, með gervigreindarforritum á borð við DALL-E og Microsoft Designer. Þetta eru forrit sem sem opin eru öllum og afar auðvelt er að nota. Drífa Snædal talskona Stígamóta segir málið birtingarmynd nýs og óhugnanlegs veruleika.

„Já, ég reikna með því, við vitum að allar framfarir í tækni, klámiðnaðurinn er fljótur að tileinka sér þær. Líka þeir sem vilja beita annað fólk ofbeldi eða einelti. Þannig að það má búast við því. Við vitum öll hvernig okkur varð við þegar við sáum Hemma Gunn birtast lifandi í áramótaskaupinu, það fékk á suma og vakti marga til umhugsunar. Ég held að fólk ætti að reyna að setja sig í þessi spor, að það séu allt í einu komnar nektarmyndir af þér, vídjó, eða klámmyndbönd. Við myndum skilgreina það sem ofbeldi, að birta slíkt.“


Tengdar fréttir

Nektarmyndir af Swift skapaðar af gervigreind í dreifingu

Klámfengnar myndir af bandarísku poppstjörnunni Taylor Swift, sem skapaðar voru af gervigreind, dreifðust eins og eldur í sinu um samfélagsmiðla á dögunum. Þingmenn í fulltrúadeild Bandaríkjanna hafa síðan gert ákall eftir löggjöf gegn fölsuðu myndefni af þessu tagi. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.