Lífið

Morgunbolli með nýjum borgar­stjóra

Stefán Árni Pálsson skrifar
Einar Þorsteinn er orðinn borgarstjóri Reykjavíkur og tekur við af Degi B Eggertssyni.
Einar Þorsteinn er orðinn borgarstjóri Reykjavíkur og tekur við af Degi B Eggertssyni.

Einar Þorsteinsson tók við sem borgarstjóri í Reykjavík í gær og tók Sindri Sindrason morgunbollann með honum í gærmorgun í tilefni dagsins.

„Ég er svosem ekki að byrja í vinnunni í dag og er búinn að fá góðan undirbúning. Ég hef verið formaður borgarráðs í eitt og hálft ár,“ segir Einar á heimili sínu í Seljahverfinu í Reykjavík. Þar býr hann ásamt eiginkonu sinni Millu Ósk og þremur börnum. Einar á tvær dætur úr fyrra hjónabandi en hann og Milla eiga einn son saman.

„Það kemur mér í raun og veru mest á óvart hvað þetta er skemmtilegt. Fjölbreytt og ótrúlega ólíkir málaflokkar og alltaf eitthvað nýtt.“

Hér að neðan má sjá brot úr innslagi Íslands í dag frá því í gærkvöldi en áskrifendur geta horft á það í heild sinni á Stöð 2+ og í frelsiskerfi Stöðvar 2.

Klippa: Morgunbolli með nýjum borgarstjóra





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.