Lífið

„Við þurfum ekki að klappa fyrir öllu sem ég geri“

Lovísa Arnardóttir skrifar
Christina Applegate á sviði Emmy-verðlaunanna í gær. Kynnir kvöldsins, Anthony Anderson, leiddi hana inn á sviðið og stendur við hlið hennar á myndinni.
Christina Applegate á sviði Emmy-verðlaunanna í gær. Kynnir kvöldsins, Anthony Anderson, leiddi hana inn á sviðið og stendur við hlið hennar á myndinni. Vísir/AP

Leikkonan Christina Applegate kom fólki á óvart með því að vera einn kynna á Emmy-verðlaunahátíðinni sem fór fram í gærkvöldi.

Leikkonan kynnti verðlaun fyrir bestu leikkonu í aukahlutverki en leikkonan Ayo Edebiri úr þáttunum The Bear fór með sigur af hólmi. Á meðan hún stóð á sviðinu stóðu áhorfendur upp og klöppuðu fyrir henni.

„Þakka ykkur kærlega,“ sagði Applegate tárvot á meðan fólkið klappaði. Á meðan hún talaði hélt fólk áfram að klappa hverju orði þar til hún sagði „Við þurfum ekki að klappa fyrir öllu sem ég geri“.

Applegate tilkynnti í ágúst árið 2021 að hún hefði greinst með MS og hefur frá þeim tíma verulega dregið úr tíma sínum í sviðsljósinu. Hún tók þátt í nokkrum viðburðum tengdum frumsýningu síðustu seríu Dead to Me þar sem hún lék aðalhlutverk ásamt Lindu Cardellini. Hún var tilnefnd til Emmy verðlauna fyrir leik sinn í þáttunum en hlaut ekki verðlaunin. Fjallað er um málið á vef Variety.

Applegate ætlar sér ekki að leika meira en sagði í viðtali við Variety í fyrra að hún sæi fyrir sér að tala meira inn á kvikmyndir og að framleiða þær. 


Tengdar fréttir

„Takk fyrir að standa með mér í gegnum þetta allt“

Leikkonan Christina Applegate hefur hlotið stjörnu á hinni frægu götu Hollywood Walk og Fame. Á síðasta ári greindist hún með MS sjúkdóminn og minntist á hann í tilfinningaþrunginni ræðu við athöfnina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.