Lífið

Bjóða til af­mælis­veislu í Laugar­dals­höll

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Erpur Eyvindarson lofar svakalegum tónleikum í Laugardalshöll.
Erpur Eyvindarson lofar svakalegum tónleikum í Laugardalshöll. Anna Margrét Árnadóttir

XXX Rottweilerhundar blása til risatónleika í Laugardalshöll föstudaginn 17. maí. Um er að ræða 25 ára afmælistónleika sveitarinnar.

Hljómsveitin kom fyrst saman árið 1999 en skaust svo upp á stjörnuhimininn í mars árið 2000 þegar sveitin vann Músíktilraunir. Þegar síðan samnefnd platínuplata hljómsveitarinnar kom út undir lok árs 2001 varð sprenging sem ekki sér fyrir endann á, eins og segir í tilkynningu vegna tónleikanna.

„Rottweilerhundar eru brautryðjendur íslenskrar rappsenu og í kjölfar þeirra fylgdi ótal tónlistarmanna sem gáfu út rapp á íslensku. Seinni plata Rottweiler kom út árið 2002 en undanfarin ár hefur hljómsveitin gefið út lög með reglulegu millibili sem öll hafa notið mikilla vinsælda.“

Erpur Eyvindarson, BlazRoca, er spenntur fyrir tónleikunum.

„Það stóð alltaf til að fagna 20 ára afmælinu með stórum tónleikum en heimsfaraldurinn kom í veg fyrir það. Þess í stað ætlum við að keyra á þetta núna þar sem við nálgumst 25 ára aldurinn, xxxR og meðlimir, við erum allir alltaf 25 ára“ segir Erpur sem fagnar 47 ára afmæli á árinu.

Landslið tónlistarmanna hefur í gegnum tíðina komið við sögu í lögum Rottweilerhunda og stendur til að fá marga góða gesti á tónleikana til að gera þá sem glæsilegasta og segja sögu þessarar stórmerku hljómsveitar.

„Það er alveg óhætt að lofa rosalegri sýningu, stemningin sem myndast á tónleikum okkar hefur alltaf verið bandbrjáluð. Við erum svo fáránlega æstir í að leggja allt okkar í hvert einasta smáatriði, fyrir fulla Laugardalshöll af okkar yfirburða aðdáendum“ segir Ágúst Bent Sigbertsson, Bent, um tónleikana.

Miðasala á tónleikana hefst á föstudaginn, 12. janúar, og fer fram á midix.is. Miði í stæði kostar 7900 krónur en 11900 krónur í stúku. 

Fróðlegt verður að sjá hverjum verður boðið á tónleikana en í einu vinsælasta lagi sveitarinnar, Þér er ekki boðið, er talinn upp listi af fólki sem annars vegar er ekki boðið og hins vegar er boðið. Meðal þeirra sem er boðið má nefna Ástþór Magnússon, Einar Bárðarson, kvennadeild Breiðabliks og Ómar Ragnarsson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.