Menning

Vetrarparadísin höfðar til ís­lenskra bókakaupenda

Jakob Bjarnar skrifar
Arnaldur, Yrsa og Ólafur Jóhann. Kóngur, drottning og krónprins íslenskrar bóksölu.
Arnaldur, Yrsa og Ólafur Jóhann. Kóngur, drottning og krónprins íslenskrar bóksölu. vísir/vilhelm (samsett)

Þá liggur það fyrir og kemur ekki á óvart; söluhæsta bók síðasta árs var Sæluríki Arnaldar Indriðasonar. Á hæla hans fylgja þau Yrsa Sigurðardóttir með Frýs í æðum blóð og Snjór í paradís eftir Ólaf Jóhann Ólafsson.

Ólafur Jóhann sýnir styrk sinn og það að hann býr að sérlega traustum hópi lesenda því hann sendi að þessu sinni frá sér smásagnasafn sem alla jafna eru ekki að skora hátt í bóksölunni. Þjóðin vill skáldsögu og helst glæpasögu.

Bryndís Loftsdóttir hjá Félagi íslenskra bókaútgefenda gantast með það að ef þessum bókum, það er titlum bóka Arnaldar, Yrsu og Ólafs Jóhanns, yrði slegið saman í eina mætti nefna hana Vetrarparadís eða Frostríki.

„Það er gaman að geta þess að árið 2020 átti Ólafur Jóhann mest seldu bókina, Snertingu, árið 2022 var röðin komin að Yrsu með Lok, lok og læs og í fyrra var það tvíeykið Ragnar Jónasson og Katrín Jakobsdóttir sem komu glæpasögu sinni, Reykjavík á toppinn.“

Að sögn Bryndísar voru bókakaupendur eilítið seinir á ferð, salan var hlutfallslega meiri á síðustu dögunum fyrir jól heldur en undanfarin ár þó ekki hafi hún náð þeim Þorláksmessuhæðum sem þekktar voru fyrir nokkrum ártugum.

Hlutdeild forlaganna

„Nokkrir titlar hefðu líklega náð hærra á listann ef þær hefðu ekki selst upp og ber þar hæst ljóðatvennu Gyrðis Elíassonar, Náttúrulögmál Eiríks Arnars Norðdahl og Orra óstöðvandi eftir Bjarna Fritzson. Auði Övu héldu hins vegar engin bönd eftir frábæra dóma í síðasta Kiljuþætti ársins, skáldsagna DJ Bambi á tvímælalaust lokasprett ársins.“

Bryndís Loftsdóttir framkvæmdastjóri Félags íslenskra bókaútgefenda rýnir í bóksölu ársins 2023 að teknu tilliti til þeirra lista sem Fíbút gefur út í aðdraganda jóla.vísir/vilhelm

Sé litið til hlutdeildar útgefenda í bóksölunni kemur á daginn að Forlagið flestar bækur á topp 20 listanum eða 7 talsins. Bjartur Veröld á 4 og Sögur útgáfa 2. Sé litið til íslenskra skáldverka á Forlagið 8 bækur, Bjartur Veröld 6, Benedikt bókaútgáfa 3 og Sögur útgáfa 2.

„Elsta íslenska bókin til að ná inn á listann er Leikskólalögin okkar með Jóni Ólafssyni sem komu út árið 2019 og sitja í 10 sæti barnabókalistans. Þá eru Lungu eftir Pedro Gunnlaug Garcia í 12. sæti skáldverkalistans en hún fékk Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrr á árinu og seldist líklega meira á síðasta ári en árið á undan þegar hún kom út,“ segir Bryndís.

Óttar, Birgitta og Bjarni setja sitt mark á listana

Þaulsetnasti höfundur landsins er svo Óttar Sveinsson með Útkallsbækur sínar sem setið hafa í efstu sætum sölulista síðast liðin 30 ár. 

Og enginn höfundur á fleiri bækur á listum en Birgitta Haukdal sem er með þrjár Láru bækur á meðal 11 mest seldu bóka ársins. Bjarni Fritzson, Gunnar Helgason og Ævar Þór Benediktsson eiga svo tvær af tuttugu mest seldu barnabókum íslenskra höfunda.

Bryndís vill að endingu koma á framfæri þökkum:

„Félag íslenskra bókaútgefenda þakka lesendum góðar viðtökur á síðasta ári. Við áætlum að fjöldi seldra bóka hafi aukist um 2 prósent á milli ára, mest í sölu barnabóka. Við bíðum svo samantektar Hagstofu Íslands á veltutölum í greininni, þær koma væntanlega þegar líða tekur á árið.“


20 mest seldu bækur ársins, 1. janúar - 31. desember 2023

  1. Sæluríkið - Arnaldur Indriðason
  2. Frýs í æðum blóð - Yrsa Sigurðardóttir
  3. Snjór í paradís - Ólafur Jóhann Ólafsson
  4. Orri óstöðvandi - jólin eru að koma - Bjarni Fritzson
  5. Útkall Mayday - erum að sökkva - Óttar Sveinsson
  6. Lára missir tönn - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
  7. Hvítalogn - Ragnar Jónasson
  8. Lára fer á jólaball - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
  9. Frasabókin - Íslensk snjallyrði við hvert tækifæri - Eyþór Wöhler og Emil Örn Aðalsteinsson
  10. Borg hinna dauðu - Stefán Máni
  11. Syngdu vögguvísur með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
  12. Bílar í lífi þjóðar - Örn Sigurðsson
  13. DJ Bambi - Auður Ava Ólafsdóttir
  14. Heim fyrir myrkur - Eva Björg Ægisdóttir
  15. Bannað að drepa - Gunnar Helgason
  16. Aðeins fleiri Pabbabrandarar - Þorkell Guðmundsson
  17. Sveindís Jane - Saga af stelpu í fótbolta - Sveindís Jane Jónsdóttir
  18. Líkaminn geymir allt - Bessel van der Kolk, þýð. Hugrún H. Kristjánsdóttir og Arnþór Jónsson
  19. Salka - Hrekkjavakan - Bjarni Fritzson
  20. Blæja (Bluey) - Góða nótt leðurblaka - Þýð. Andri Karel Ásgeirsson

Íslensk skáldverk

  1. Sæluríkið - Arnaldur Indriðason
  2. Frýs í æðum blóð - Yrsa Sigurðardóttir
  3. Snjór í paradís - Ólafur Jóhann Ólafsson
  4. Hvítalogn - Ragnar Jónasson
  5. Borg hinna dauðu - Stefán Máni
  6. DJ Bambi - Auður Ava Ólafsdóttir
  7. Heim fyrir myrkur - Eva Björg Ægisdóttir
  8. Land næturinnar - Vilborg Davíðsdóttir
  9. Deus - Sigríður Hagalín Björnsdóttir
  10. Duft - Söfnuður fallega fólksins - Bergþóra Snæbjörnsdóttir
  11. Valskan - Nanna Rögnvaldardóttir
  12. Lungu - Pedro Gunnlaugur Garcia
  13. Náttúrulögmálin - Eiríkur Örn Norðdahl
  14. Ból - Steinunn Sigurðardóttir
  15. Dauðadjúp sprunga - Lilja Sigurðardóttir
  16. Maðurinn frá São Paulo - Skúli Sigurðsson
  17. Högni - Auður Jónsdóttir
  18. Kjöt - Bragi Páll Sigurðarson
  19. Heimsmeistari - Einar Kárason
  20. Kletturinn - Sverrir Norland

Þýdd skáldverk

  1. Blóðmáni - Jo Nesbø, þýð. Halla Kjartansdóttir
  2. Miðnætti í Litlu jólabókabúðinni - Jenny Colgan, þýð. Helga Soffía Einarsdóttir
  3. Sólarupprás við sjóinn - Jenny Colgan, þýð. Helga Soffía Einarsdóttir
  4. Minningaskrínið - Kathryn Hughes, þýð. Ingunn Snædal
  5. Hundaheppni - Lee Child, þýð. Jón Hallur Stefánsson
  6. Litla kaffihúsið í Kaupmannahöfn - Julie Caplin, þýð. Kristín Valgerður Gísladóttir
  7. Jólabókaklúbburinn - Sarah Morgan, þýð. Birgitta E. Hassell og Marta H. Magnadóttir
  8. Violeta - Isabel Allende, þýð. Sigrún Á. Eiríksdóttir
  9. Smámunir sem þessir - Clarie Keegan, þýð. Helga Soffía Einarsdóttir
  10. Banvænn sannleikur - Angela Marsons, þýð. Ingunn Snædal
  11. Í hennar skóm - Jojo Moyes, þýð. Herdís M. Hübner
  12. Verity - Colleen Hoover, þýð. Birgitta Elín Hassell og Marta Hlín Magnadóttir
  13. Daladrungi - Viveca Sten, þýð. Elín Guðmundsdóttir
  14. Íbúðin í París - Lucy Foley, þýð. Herdís H. Húbner
  15. Það sem þernan sér - Freida McFadden, þýð. Ingunn Snædal
  16. Spænska ástarblekkingin - Elena Armas, þýð. Sunna Dís Másdóttir
  17. Blekkingin - Camilla Läckberg og Henrik Fexeus, þýð. Sigurður Þór Salvarsson
  18. Sjö systur 5 : Mánasystirin - Lucinda Riley, þýð. Arnar Matthíasson
  19. Brúðkaup í paradís - Sarah Morgan, þýð. Birgitta Elín Hassell og Marta Hlín Magnadóttir
  20. Köngulóin : glæpasaga - Lars Kepler, þýð. Hilmar Helgu- og Hilmarsson

Fræðirit, handbækur og ævisögur

  1. Útkall Mayday - erum að sökkva - Óttar Sveinsson
  2. Frasabókin - Íslensk snjallyrði við hvert tækifæri - Eyþór Wöhler og Emil Örn Aðalsteinsson
  3. Bílar í lífi þjóðar - Örn Sigurðsson
  4. Aðeins fleiri Pabbabrandarar - Þorkell Guðmundsson
  5. Líkaminn geymir allt - Bessel van der Kolk, þýð. Hugrún Hrönn Kristjánsdóttir og Arnþór Jónsson
  6. Hugrekki til að hafa áhrif - Halla Tómasdóttir
  7. Ullaræði: Villahullu - Heli Nikula, þýð. Guðrún Hannele Henttinen
  8. Blóðsykursbyltingin - Jessie Inchauspé, þýð. Nanna Rögnvaldardóttir
  9. Afi minn stríðsfanginn - Elín Hirst
  10. Kynlegt stríð - Ástandið í nýju ljósi - Bára Baldursdóttir
  11. Morðin í Dillonshúsi - Sigríður Dúa Goldsworthy
  12. Forystufé og fólkið í landinu - Guðjón Ragnar Jónasson og Daníel Hansen
  13. Heiðarprjón - Lene Holme Samsøe, myndh. K. Rohrberg, þýð. Ásdís Sigurgestsd. og Guðrún B. Þórsd.
  14. Hekla - Elsa Harðardóttir
  15. Vegahandbókin : ferðahandbókin þín - Ýmsir höfundar
  16. Krossgátur Morgunblaðið bók 14 - Edda útgáfa
  17. Í eldhúsinu með Hrefnu Sætran - Hrefna Sætran
  18. Gagnfræðakver handa háskólanemum - Friðrik H. Jónsson og Sigurður J. Grétarsson
  19. Björn Pálsson : Flugmaður og þjóðsagnapersóna - Jóhannes Tómasson
  20. Lífið er kynlíf - Handbók kynfræðings um langtímasambönd - Áslaug Kristjánsdóttir, myndh. Ari Magg

Íslenskar barna- og ungmennabækur

  1. Orri óstöðvandi - jólin eru að koma - Bjarni Fritzson, myndh. Þorvaldur Sævar Gunnarsson
  2. Lára missir tönn - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
  3. Lára fer á jólaball - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
  4. Syngdu vögguvísur með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
  5. Bannað að drepa - Gunnar Helgason, myndh. Rán Flygenring
  6. Sveindís Jane - Saga af stelpu í fótbolta - Sveindís Jane Jónsdóttir
  7. Salka - Hrekkjavakan - Bjarni Fritzson
  8. Bella gella krossari - Gunnar Helgason, myndh. Rán Flygenring
  9. Skólaslit 2 - Dauð viðvörun - Ævar Þór Benediktsson, myndh. Ari H.G. Yates
  10. Leikskólalögin okkar - Jón Ólafsson, myndh. Úlfur Logason
  11. Álfar - Hjörleifur Hjartarson, myndh. Rán Flygenring
  12. Eldur - Björk Jakobsdóttir, myndh. Freydís Kristjánsdóttir
  13. Fótboltaspurningar 2023 - Guðjón Ingi Eiríksson
  14. Hrím - Hildur Knútsdóttir
  15. Mömmuskipti - Arndís Þórarinsdóttir og Hulda Sigrún Bjarnadóttir
  16. Stelpur stranglega bannaðar! - Embla Guðný Jónsdóttir Bachman, myndh. Blær Guðmundsdóttir
  17. Spurningabókin 2023 - Guðjón Ingi Eiríksson
  18. Íslensku dýrin okkar - Helgi Jónsson og Anna Margrét Marinósdóttir
  19. Sagan af Dimmalimm - Guðmundur Thorsteinsson, myndh. Olena Soroka og Vladimiro Rikowski
  20. Þín eigin saga : Veiðiferðin - Ævar Þór Benediktsson

Þýddar barna- og ungmennabækur

  1. Blæja (Bluey) - Góða nótt leðurblaka - Daniella Wills, þýð. Andri Karel Ásgeirsson
  2. Jólaföndur - Unga ástin mín
  3. Dagbók Kidda klaufa 17 - Rokkarinn reddar öllu - Jeff Kinney, þýð. Helgi Jónsson
  4. Verstu gæludýr í heimi - David Walliams, myndh. Adam Stower, þýð. Guðni Kolbeinsson
  5. Gleðilega Jólahátíð - þrautabók - Unga ástin mín
  6. Jólasyrpa 2023 - Walt Disney
  7. Risaeðlugengið 5 - Sæskrímslið - Lars Mæhle, myndh. Lars Rudebjer
  8. "Snúum og leikum, teningaspil " - Þýð. Andri Karel Ásgeirsson
  9. Fótboltastjörnur - Messi er frábær! - Simon Mugford, þýð. Guðni Kolbeinsson
  10. Litlir lærdómshestar - Stafir - Elisabeth Golding
  11. Blæja (Bluey) límum þetta! - Daniella Wills, þýð. Andri Karel Ásgeirsson
  12. Dýrahljóð - bók með hljóði - Sam Taplin, þýð. Kolbeinn Þorsteinsson
  13. Fótboltastjörnur - Mbappé er frábær! - Simon Mugford, þýð. Guðni Kolbeinsson
  14. Litlu börnin læra - sveitin - Þýð. Andri Karel Ásgeirsson
  15. Depill á jólunum - Eric Hill, þýð. Jakob F. Ásgeirsson
  16. Gurra komum á koppinn - Þýð. Andri Karel Ásgeirsson
  17. Bóbó bangsi í leikskólanum - Susan Niessen, myndh. Hartmut Bieber
  18. Greppikló - Julia Donaldson, myndh. Axel Scheffler, þýð. Þórarinn Eldjárn
  19. Ofurskrímslið - David Walliams, myndh. Tony Ross, þýð. Guðni Kolbeinsson
  20. Lúlli - Ulf Löfgren, þýð. Sigríður Rögnvaldsdóttir

Tengdar fréttir

Frasa­bókin er svarti foli þessarar ver­tíðar

Ef pakkinn þinn líkist bók þá eru mestar líkur á að í honum leynist Arnaldur, Yrsa eða Ólafur Jóhann. Þessi þrjú eiga mest seldu skáldverk ársins samkvæmt Bóksölulista Félags íslenskra bókaútgefenda.

Arnaldur á toppnum og fátt fær því breytt

Þá lítur fyrsti jóla-bóksölulisti Félags íslenskra bókaútgefenda ljós. Listi vikunnar nær yfir tímabilið 1.-26. nóvember en fram að jólum verður listinn svo tekinn saman vikulega.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.