Bætir í vind og kólnar þegar líður á daginn Atli Ísleifsson skrifar 14. desember 2023 07:33 Gera má ráð fyrir suðvestlægum áttum og skúrum eða éljum næstu dag. Vísir/Vilhelm Núna í morgunsárið er suðvestanátt á landinu, yfirleitt á bilinu tíu til átján metrar á sekúndu. Úrkomubakki sem gekk á land á suðvesturhorninu í nótt er á leið norður af landinu en í kjölfarið eru skúrabakkar að nálgast.
Á vef Veðurstofunnar segir að er líður á daginn bæti heldur í vind og kólni og skúrir breytast í él. Gera má ráð fyrir að hiti verði um og yfir frostmarki. Gular viðvaranir eru í gildi víða um vestanvert landið fram á morgundaginn vegna suðvestanáttar og dimmra élja. Má gera ráð fyrir að staðbundið verði 15 til 23 metrar á sekúndu og að akstursskilyrði verði víða erfið. Gular viðvaranir eru víða í gildi til klukkan sex í fyrramálið.Veðurstofan Lítil fjölbreytni er síðan í veðrinu næstu daga, suðvestlægar áttir, skúrir eða él og hiti í kringum frostmark. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Suðvestan og sunnan 13-20 m/s og rigning eða snjókoma með köflum en úrkomuminna norðaustantil. Hiti 0 til 6 stig. Dregur úr vindi seinnipartinn og kólnar vestanlands með éljum. Á laugardag: Suðvestan 8-15 m/s og él, en þurrt að kalla á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti nálægt frostmarki. Á sunnudag: Suðlæg átt og rigning eða slydda með köflum, en lengst af þurrt norðanlands. Fer að snjóa vestantil um kvöldið. Frost 0 til 5 stig en rétt yfir frostmarki við suðurströndina. Á mánudag: Vestlæg átt og stöku él, einkum við ströndina. Frost 0 til 6 stig. Snjókoma eða slydda og hlýnar suðvestantil um kvöldið. Á þriðjudag: Norðan og norðvestan átt með snjókomu eða él, en þurrt að kalla suðaustanlands. Kólnandi. Á miðvikudag: Útlit fyrir norðlæga átt með snjókomu, en bjartviðri um sunnanvert landið.
Veður Mest lesið „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Innlent Segir Harris veika á geði Erlent Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Innlent Uppgjör á hægri vængnum: „Ægishjálmur Sjálfstæðisflokksins“ ekki lengur veruleikinn Innlent Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Erlent Mennirnir tveir fundnir Innlent „Óþekku börnin frá Grindavík“ vakti úlfúð Innlent Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Erlent Ávaxtakarfan frumsýnd í Hveragerði Innlent Sagður hafa nauðgað konu fyrir níu árum Innlent Fleiri fréttir Lægð stjórnar veðrinu um helgina Lægðardrag þokast suður Rigning eða slydda norðan- og austanlands Dregur úr vindi og ofankomu Svalt í veðri og gengur í blástur Útlit fyrir áframhaldandi rólegheit Milt veður en lægð nálgast Hægir suðvestanvindar og yfirleitt bjartviðri Allt að 17 stig á Austurlandi Næsta lægð nálgast úr suðvestri Gular viðvaranir í hvassviðris Lægð nálgast landið í nótt og gular viðvaranir á morgun Rigning, slydda og jafnvel snjókoma norðaustanlands Gul viðvörun á Suður- og Suðausturlandi til hádegis Gular viðvaranir vegna storms sunnantil Um sjö stiga frost mældist í Eyjafirði í nótt Þurrt og bjart nokkuð víða Norðanáttum beint til landsins Von á 35 metrum á sekúndu í hviðum á Kjalarnesi Kalt, blautt og hvasst „Þetta er alvöru hret“ Snjókoma á Norðurlandi og ekki mælt með ferðalögum Gular og appelsínugular viðvaranir víða um land Búast við slyddu og snjókomu á fjallvegum Hiti gæti náð tuttugu stigum fyrir austan Hvessir aftur þegar líður á daginn Slær sums staðar í storm norðvestantil Lægð yfir landinu og gul viðvörun á Breiðafirði Bjartur dagur sunnantil og hiti að sextán stigum Spáð mildu veðri í dag Sjá meira