Tónlist

Margir nýliðar tilnefndir til Kraumsverðlauna

Samúel Karl Ólason skrifar
Verðlaunahafar Kraumsverðlaunanna í fyrra, 2022.
Verðlaunahafar Kraumsverðlaunanna í fyrra, 2022.

Tuttugu hljómsveitir og listamenn hafa verið tilnefndir til Kraumsverðlauna, sem eru árleg verðlaun á Degi íslenskrar tónlistar. Verðlaunin verða afhent í sextánda sinn síðar í þessum mánuði.

Í tilkynningu segir að það sem einkenni tilnefningarnar í ár sé gríðarleg fjölbreytni. Mikil gróska ríki í íslensku tónlistarlífi á sviðið popps, rokks, Jazz, teknós, hip hops og þjóðlaga og að tilraunatónlist sé hampað.

Stór hluti þeirra sem dómnefndin hefur tilnefnt var að gefa út fyrstu plötuna.

Þeir sem eru tilnefndir til Kraumsverðlaunanna 2023 eru:

Apex Anima - ELF F O

Daniiil - 600

Elín Hall - Heyrist í mér

Eva808 - Öðruvísi

ex.girls - Verk

Flexi lyfseðill - behov

Flyguy - Bland í poka

Ingibjörg Elsa Turchi - Stropha

Intr0beatz - Fókus

Jadzia - Hidden Universe EP

Jelena Ciric - Shelters Two

Kári - Palm Trees In The Snow

Laufey - Bewitched

Lúpína - Ringluð

MSEA - Our Daily Apocalypse Walk

Neonme - Premiere

Skorri - Go Ahead!

Spacestation - Bæbæ

Sunna Margrét - Five Songs For Swimming

Xiupill - Pure Rockets

Kraumsverðlaunin eru árleg plötuverðlaun Auroru velgerðarsjóðs og er þeim ætlað að kynna og styðja við plötuútgáfu íslenskra listamanna og hljómsveita. Þau voru fyrst veitt árið 2008.

Dómnefnd Kraumsverðlaunanna.

Kraumsverðlaunin 2023 eru valin af níu manna dómnefnd skipuð fólki með margvíslega reynslu af því að fjalla um, spila og vinna með íslenska tónlist í fjölmiðlum og á öðrum vettvangi. Dómnefndina skipa; Árni Matthíasson (formaður dómnefndar), Arnar Eggert Thoroddsen, Helga Þórey Jónsdóttir, Lovísa Rut Kristjánsdóttir, María Lilja Þrastardóttir, Óli Dóri, Rósa Birgitta Ísfeld, Trausti Júlíusson og Þorbjörg Roach Gunnarsdóttir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.