Lífið

Lúxus heitt súkku­laði með kanilkeim og súkkulaðirjóma

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Það er fátt betra og hátíðlegra en heitt súkkulaði um jólin.
Það er fátt betra og hátíðlegra en heitt súkkulaði um jólin.

Elenora Rós Georgesdottir bakari deildi girnilegri uppskrift af heitu súkkulaði fyrir jólin. Uppskriftin er sannköllluð lúxus útgáfa þar sem hún inniheldur kanill, bismark, möndlur, og salt karamella. Jól í bolla!

„Það er fátt betra og hátíðlegra en heitt súkkulaði um jólin! Þetta er heitt súkkulaði sem er fullkomið þegar það á að gera vel við sig og sína um hátíðarnar. Kanill, bismark, möndlur, salt karamella og besta suðusúkkulaði, allt saman í einum bolla,“ skrifar Elenora við færsluna. 

Elenora

Heitt súkkulaði:

  • 200 gr suðusúkkulaði
  • 800 ml mjólk
  • 200 ml rjómi
  • 1 tsk salt
  • 1 msk sykur
  • 1 tsk kanill

Rjómi:

  • Einn peli rjómi
  • 2 msk kakó

Til skreytingar:

  • Smátt saxaðar möndlur
  • Smátt saxað bismark eða jólastafur
  • Salt karamella

Aðferð:

  • Sjóðið mjólkina og rjómann saman.
  • Bætið kanil, salti og sykri saman við og sjóðið.
  • Að lokum bætið þið við suðusúkkulaðinu og hrærið þar til allt er bráðnað.
  • Þeytið næst rjóma og bætið svo kakóinu varlega saman við.
  • Hellið súkkulaðinu í bolla, setjið rjóma ofan á og skreytið með saltri karamellu, jóla brjóstsykri og söxuðum möndlum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.