Viðskipti innlent

Bein út­sending: Rétt­lát um­skipti á vinnu­markaði

Atli Ísleifsson skrifar
Fundurinn stendur milli klukkan 8:30 og 10.
Fundurinn stendur milli klukkan 8:30 og 10.

Hvaða áhrif hafa loftslagsbreytingar á störf og lífskjör launafólks og munu markmið stjórnvalda um réttlát umskipti nást?

Þetta er umfjöllunarefnið á sameiginlegum morgunverðarfundi sem ASÍ, BSRB og BHM standa fyrir milli klukkan 8:30 og 10 í dag. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi að neðan.

Í tilkynningu segir að á fundinum verði fjallað um hugmyndafræðina sem réttlát umskipti byggja á og hvaða þýðingu þau hafi fyrir íslenskt samfélag, vinnumarkað, efnahag og velferð launafólks.

„Leitast verður við að varpa ljósi á núverandi stefnu og aðgerðir stjórnvalda og hvað uppá vantar til að markmið um réttlát umskipti náist.

Á fundinum verður leitast við að svara eftirfarandi spurningum og varpa ljósi á þýðingu réttlátra umskipta fyrir íslenskt samfélag og launafólk: Hvað eru réttlát umskipti? Hvaða áhrif hafa loftslags- og tæknibreytingar á vinnumarkað og störf hér á landi? Stuðla aðgerðir íslenskra stjórnvalda að réttlátum umskiptum? Geta umhverfisskattar verið réttlátir og hvernig þá? Með hvaða hætti er hægt að samtvinna aukin réttindi á vinnumarkaði, bætt kjör og meiri lífsgæði við markmið í loftslagsmálum í kjarasamningum?

Af hverju: Fundurinn er haldinn í tilefni af og í aðdraganda að þríhliða viðburði norrænna stjórnvalda og aðila vinnumarkaðar sem haldinn verður í Hörpu 1. desember,“ segir í tilkynningunni.

Dagskrá:

  • 08:30 - 08:45: Réttlæti sem forsenda virkrar samstöðu – Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs
  • 08:45 - 09:05: Hvaða þýðingu hafa réttlát umskipti fyrir vinnumarkað og lífskjör? – Auður Alfa Ólafsdóttir, sérfræðingur í umhverfis- og neytendamálum hjá ASÍ
  • 09:05 - 09:15: Réttlát stefnumótun, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir – hagfræðingur hjá BSRB
  • 09:15 - 09:25: Grænir kjarasamningar, Kolbrún Halldórsdóttir – formaður BHM
  • 09:25 - 10:00: Pallborð: Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB og Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BSRB. Auður Önnu Magnúsdóttir, fráfarandi framkvæmdastjóri Landverndar stýrir pallborði.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×