Lífið

Gemma Owen er gengin út

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Gemma fær sér ekki nýjan kærasta á hverjum degi.
Gemma fær sér ekki nýjan kærasta á hverjum degi. Instagram

Breska raun­veru­leika­þátta­stjarnan Gemma Owen er gengin út. Hún er nú byrjuð með boxaranum Aadam Hamed en bresk götu­blöð greina frá því að þau hafi skellt sér saman til Dubai.

Gemma skaust upp á stjörnu­himininn eftir að hún tók þátt í bresku raun­veru­leika­þáttunum Love Is­land í fyrra. Þar byrjaði hún með fisk­salanum Luca Bish og komust þau alla leið í úr­slita­þáttinn.

Hún og Luca hættu saman þremur mánuðum eftir að þáttunum lauk, í nóvember á síðasta ári. Breskir miðlar höfðu allan tímann full­yrt að Michael Owen, faðir hennar og fyrr­verandi knatt­spyrnu­maður, hefði aldrei lagt blessun sína yfir sam­bandið.

Gemma hefur sagst hafa verið ein­hleyp allar götur síðan, þrátt fyrir að hafa verið orðuð við póló­leik­manninn Tommy Se­vern. Breska götu­blaðið The Sun hefur eftir henni af sam­fé­lags­miðlum að hún hafi á­kveðið að ein­beita sér að á­huga­málinu sínu en Gemma er hesta­kona. Nú hafi hún hins vegar loksins gengið út.

Hinn heppni er hinn lítt þekkti boxari Aadam Hamed. Hann er helst þekktur fyrir að vera sonur boxarans Prince Naseem Hamed sem átti nokkra heims­meistara­titla í boxi, í létt­vigtar­flokki frá 1992 til 2002. Aadam steig fyrst í hringinn í ágúst síðast­liðnum og fór þá með sigur af hólmi gegn boxaranum Vojtech Hrdy frá Tékk­landi.

Breska götu­blaðið hefur eftir ó­nefndum heimildar­manni að þau Gemma og Aadam hafi stungið saman nefjum í nokkra mánuði. Þau séu enn ekki opin­ber­lega saman þó ferðin til Dubai sé til marks um að það kunni brátt að breytast.

Aadam og Gemma birtu bæði myndir af sér í Dubai og þá komust bresk götublöð á snoðir um allt saman. Instagram





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.