Lífið samstarf

Birgitta Haukdal sló í gegn í Smáralind

Forlagið
Birgitta Haukdal  var að gefa út þrjár nýjar bækur hjá Forlaginu um Láru og Ljónsa. Fjöldi fólks lagði leið sína í Smáralind þar sem Birgitta áritaði bækur.
Birgitta Haukdal  var að gefa út þrjár nýjar bækur hjá Forlaginu um Láru og Ljónsa. Fjöldi fólks lagði leið sína í Smáralind þar sem Birgitta áritaði bækur.

Birgitta Haukdal og dóttir hennar, Saga Júlía, ásamt Láru og Ljónsa frá Þjóðleikhúsinu, fylltu Smáralindina i síðustu viku þegar þau tróðu þar upp. Fjöldi fólks lagði leið sína í Smáralind til að horfa á þau syngja og sprella, ásamt því að gæða sér á veitingum og fá áritun frá rithöfundinum Birgittu Haukdal.

Birgitta var alsæl með móttökurnar og mjög þakklát öllum þeim sem mættu í Smáralindina og fögnuðu með henni útgáfu bókanna. „Þetta var ótrúlega skemmtilegt og ég vona að allir hafi skemmt sér jafn vel og ég,“ sagði Birgitta.

Stóri Láru og Ljónsa dagurinn var haldinn í tilefni þess að Birgitta var að gefa út þrjár nýjar bækur hjá Forlaginu um Láru og Ljónsa: Syngdu vögguvísur með Láru og Ljónsa, Lára fer á jólaball og Lára missir tönn. Hægt er að nálgast allar bækurnar í netverslun Forlagsins, forlagid.is, eða með því að smella hér. Einnig er hægt að sjá leikrit um Láru og Ljónsa í Þjóðleikhúsinu og kaupa ýmsar Láru og Ljónsa vörur í Hagkaup.

Hér má sjá nokkrar myndir frá deginum:






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.