Má reikna með allhvössum vindstrengjum syðst á landinu Atli Ísleifsson skrifar 5. október 2023 07:28 Þórsmörk í haustlitum um síðustu helgi. Vísir/Vilhelm Búast má við allhvössum vindstrengjum syðst á landinu fram á kvöld og geta staðbundið myndast varasamar aðstæður fyrir þau ökutæki sem eru viðkvæmust fyrir vindi, einkum í Mýrdal og undan Öræfum.
Þetta kemur fram á vef Veðurstofunnar. Þar segir að reikna megi með austan fimm til þrettán metrum á sekúndu, en þrettán til átján í vindstrengjum syðst á landinu. „Stöku skúrir eða él norðan- og austanlands. Rigning öðru hvoru á Suður- og Vesturlandi, en styttir upp þar síðdegis. Hiti í dag 2 til 9 stig, mildast á Suðurlandi.Lægir víða á morgun og birtir upp, en stöku skúrir eða él með suður- og austurströndinni. Hiti 1 til 7 stig og frystir allvíða annað kvöld,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Austan- og norðaustan 3-10 m/s. Víða þurrt veður og bjart með köflum, en stöku skúrir á sunnanverðu landinu. Hiti 1 til 6 stig yfir daginn, en víða næturfrost. Á laugardag: Breytileg átt 3-8 og víða léttskýjað, en skýjað og sums staðar dálítil væta á Vesturlandi. Hiti breytist lítið. Á sunnudag: Gengur í suðvestan 8-13 og þykknar upp á vestanverðu landinu með súld og rigningu. Hægari vindur og léttskýjað austantil. Hlýnar heldur í veðri, hiti 3 til 8 stig síðdegis. Á mánudag: Vestlæg átt 5-10 og dálítil riging, en þurrt á Suðausturlandi og Austfjörðum. Norðlægari um kvöldið með éljum norðantil á landinu, en þurrt syðra. Kólnandi veður. Á þriðjudag: Norðan 10-18 með úrkomu á norðurhelmingi landsins, rigning nærri sjávarmáli, en snjókoma á heiðum. Þurrt um landið sunnanvert. Hiti 0 til 4 stig.
Veður Mest lesið Menn hér á landi verið tengdir hryðjuverkasamtökum Innlent Fjölga rýmum á öryggisgeðdeild og ný stofnun í startholunum Innlent Höfðar mál gegn Íslandi vegna úrgangsmála Innlent Fluttur á slysadeild eftir líkamsárás Innlent Enn stefnt á uppbyggingu þótt talan hundrað sé ekki heilög Innlent Bilun í stofnneti Ljósleiðarans Innlent „Ekki kynnst alvöru málþófi ef þau telja þetta vera mikið málþóf“ Innlent Landlæknir varar við sýningu Adolescence-þáttanna Innlent Adolescence gott samfélagsinnlegg en ekki góð forvörn Innlent Hryssurnar lamdar, ýtt í þær með prikum og þær beittar afli Innlent Fleiri fréttir Fremur hlýtt en bætir í vind í kvöld Rigning sunnan- og vestantil Hiti gæti farið í sextán stig norðantil Hiti gæti náð átján stigum fyrir norðan og austan Allt að 18 stiga hiti á morgun en súld og léttskýjað í dag Allt að 14 stiga hiti á Austurlandi í dag Hvassir vindstrengir á Snæfellsnesi en milt loft yfir landinu Hlýnar í veðri en kólnar ört eftir sólsetur Síðasta lægðin í bili gengur norður yfir landið Víða snjókoma, slydda eða rigning í nótt Dregur úr vindi þegar líður á daginn Sundgestir reknir inn vegna þruma og eldinga Hlýnandi veður Veðurviðvaranir um helgina Góður möguleiki á að sjá deildarmyrkva Snjókoma sunnantil eftir hádegi Stöku skúrir eða slydduél sunnan heiða Vindasamt á meðan öflugt úrkomusvæði gengur yfir landið Suðvestanátt með skúrum víða um land Vindasamt og úrkomusvæði gengur yfir landið Slydda eða snjókoma með köflum í flestum landshlutum Með rólegasta móti Skúrir og slydduél sunnan- og vestantil Rigning sunnan- og vestantil og kólnar síðdegis Dálítil væta og bætir í vind Hæg suðlæg átt og hiti að tíu stigum Mild sunnanátt og dálítil væta Væta af og til Íbúar á austari hluta landsins gætu séð til tunglmyrkvans Norðlæg átt en bjart að mestu sunnanlands Sjá meira