Veiði

Sá stærsti úr Elliðaánum í sumar

Karl Lúðvíksson skrifar
Al­ex­and­er Þór Sindra­son með laxinn sem mældist 92 sm
Al­ex­and­er Þór Sindra­son með laxinn sem mældist 92 sm

Elliðaárnar eru sífellt að skila veiðimönnum stærri löxum og í sumar hafa nokkrir yfir 90 sm gengið í ánna og loksins einn af þeim sem veiðist.

Það var ungur og knár veiðimaður Al­ex­and­er Þór Sindra­son sem setti í laxinn á rauða frances í Símastreng og var laxinum landað eftir klukkutíma neðan í ánni í veiðistaðnum Hraun. Þetta er stærsti laxinn úr ánni í sumar en nokkrir stærri hafa gengið í hana og þar af einn sem laxateljarinn mældi um 99 sm. Það liggja nokkrir stórir í Kistunni og í Höfuðhyl sem hafa verið að sýna sig en ekki ennþá tekið agn veiðimanna. Þetta er tíminn sem stæóru hængarnir fara að taka svo við gætum kannski fengið einhver stærri upp úr ánni í haust en það eru ennþá nokkrir dagar eftir af veiði í ánni í sumar.






×