Hiti að fimmtán stigum og hæg breytileg átt Atli Ísleifsson skrifar 30. ágúst 2023 07:14 Seint á föstudag er von á nokkuð djúpri lægð og henni mun fylgja hvassviðri og rigning. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir suðaustan fimm til tíu metrum á sekúndu með suðurströndinni í dag en annars fremur hægri, breytilegri átt á landinu.
Það verður skýjað með köflum og stöku skúrir en þurrt að kalla norðaustanlands. Á vef Veðurstofunnar segir að gert sé ráð fyrir að hiti verði á bilinu níu til fimmtán stig í dag. „Á morgun verður suðlæg eða breytileg átt 3-8 og bjart með köflum en stöku skúrir á víð og dreif. Hiti breytist lítið. Seint á föstudag er svo von á nokkuð djúpri lægð og henni mun fylgja hvassviðri og stormur og rigning, jafnvel talsverð á köflum. Næstu daga er því kjörið að huga að öllum lausamunum í næsta nágrenni og koma þeim í skjól,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings, en verst verður veðrið sunnan og vestantil. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Hægviðri, en suðaustan 5-10 m/s með suðvesturströndinni. Smá skúrir á víð og dreif, en að mestu þurrt norðaustanlands. Hiti 9 til 15 stig. Á föstudag: Vaxandi suðaustanátt, 15-20 með rigningu síðdegis, en hægara og þurrt norðaustantil. Hiti 10 til 16 stig. Bætir í vind og úrkomu seint um kvöldið. Á laugardag: Sunnan og suðvestan 13-20 með rigningu, talsverðri á köflum. Skúrir seinnipartinn, en styttir upp norðaustantil. Hiti 12 til 17 stig yfir daginn. Á sunnudag: Ákveðin sunnanátt með rigningu víða um land, en þurrt að kalla fyrir norðan. Dregur úr úrkomu um kvöldið. Hiti 10 til 16 stig. Á mánudag: Suðvestanátt og skúrir, en þurrt að mestu norðanlands. Hiti 9 til 14 stig. Á þriðjudag: Útlit fyrir suðvestlæga átt. Skýjað með lítilsháttar vætu vestanlands en léttskýjað fyrir austan. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Menn hér á landi verið tengdir hryðjuverkasamtökum Innlent Fjölga rýmum á öryggisgeðdeild og ný stofnun í startholunum Innlent Höfðar mál gegn Íslandi vegna úrgangsmála Innlent Fluttur á slysadeild eftir líkamsárás Innlent Enn stefnt á uppbyggingu þótt talan hundrað sé ekki heilög Innlent Bilun í stofnneti Ljósleiðarans Innlent „Ekki kynnst alvöru málþófi ef þau telja þetta vera mikið málþóf“ Innlent Landlæknir varar við sýningu Adolescence-þáttanna Innlent Adolescence gott samfélagsinnlegg en ekki góð forvörn Innlent Hryssurnar lamdar, ýtt í þær með prikum og þær beittar afli Innlent Fleiri fréttir Fremur hlýtt en bætir í vind í kvöld Rigning sunnan- og vestantil Hiti gæti farið í sextán stig norðantil Hiti gæti náð átján stigum fyrir norðan og austan Allt að 18 stiga hiti á morgun en súld og léttskýjað í dag Allt að 14 stiga hiti á Austurlandi í dag Hvassir vindstrengir á Snæfellsnesi en milt loft yfir landinu Hlýnar í veðri en kólnar ört eftir sólsetur Síðasta lægðin í bili gengur norður yfir landið Víða snjókoma, slydda eða rigning í nótt Dregur úr vindi þegar líður á daginn Sundgestir reknir inn vegna þruma og eldinga Hlýnandi veður Veðurviðvaranir um helgina Góður möguleiki á að sjá deildarmyrkva Snjókoma sunnantil eftir hádegi Stöku skúrir eða slydduél sunnan heiða Vindasamt á meðan öflugt úrkomusvæði gengur yfir landið Suðvestanátt með skúrum víða um land Vindasamt og úrkomusvæði gengur yfir landið Slydda eða snjókoma með köflum í flestum landshlutum Með rólegasta móti Skúrir og slydduél sunnan- og vestantil Rigning sunnan- og vestantil og kólnar síðdegis Dálítil væta og bætir í vind Hæg suðlæg átt og hiti að tíu stigum Mild sunnanátt og dálítil væta Væta af og til Íbúar á austari hluta landsins gætu séð til tunglmyrkvans Norðlæg átt en bjart að mestu sunnanlands Sjá meira