Lífið

Linda Pé fann ástina á Spáni

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Linda Pé hefur fundið ástina í faðmi spænska draumaprinsins Jaime.
Linda Pé hefur fundið ástina í faðmi spænska draumaprinsins Jaime. Linda Pé.

Fegurðardrottningin og lífstílsþjálfinn Linda Pétursdóttir hefur fundið ástina í faðmi spænska folans, Jaime. Parið kynntist á Spáni.

Linda og Jaime eru stödd á glæsilegu hóteli á spænsku eyjunni Formentera þar sem þau njóta lífsins í suðrænu og rómantísku umhverfi. Heiðskír himinn, tær sjór og hvítar stendur, gerist varla betra.

Linda hefur gefið fylgjendum sínum á Instagram innsýn í nýja ástarsambandið síðastliðna daga þar sem óhætt er að fullyrða að þau séu afar lukkuleg með hvort annað. Myndirnar eru iðulega merktar hjarta-tjáknum eða með rómantískri tónlist í bakgrunn. 

Þar má nefna lag með hjartaknúsaranum Enrique Iglesisas, Could I Have This Kiss Forever.

Linda og Jaime njóta lífsins í sólinni á Spáni.Linda Pé.
Linda og Jaime kynntust á Spáni.Linda Pé.
Linda og Jaime virðast afar lukkuleg með hvort annað.Linda Pé.
Útsýnið fallegt af svölunum hjá Lindu.Linda Pé.
Morgunsundið í sjónum.Linda Pé.
Jaime myndar sólsetrið af svölunum.Linda Pé.
Notaleg vinnuaðstaða.Linda Pé.
Jaime á ströndinni.Linda Pé.

Opnaði á ástina á ný

Í desember í fyrra sagði Linda frá því að hún væri búin að taka meðvitaða ákvörðun um að opna fyrir ástinni á nýjan leik. Hún sagðist vera tilbúin í rómantískt samband eftir að hafa verið einhleyp í þrjú ár. 

„Ég hef aldrei verið týpan sem er að flýta mér úr einu sambandi í annað. Ég tek mér yfirleitt langan tíma á milli sambanda og mér hefur alltaf þótt gott að vera ein með sjálfri mér. Ég er sjálfstæð og ég þarf ekki á karlmanni að halda fjárhagslega til að sjá fyrir mér á neinn hátt,“ sagði Linda í þætti af hlaðvarpinu Lífið með Lindu Pé í fyrra.


Tengdar fréttir

Opnar fyrir ástinni á ný: „Ég er til­búin að hitta góðan mann“

Fegurðardrottningin og lífsþjálfinn Linda Pétursdóttir hefur verið einhleyp síðustu þrjú ár. Síðustu ár hefur hún einblínt á sjálfsrækt og fyrirtækið sitt og hefur ekki verið í leit að ástinni. Nú hefur Linda hins vegar tekið meðvitaða ákvörðun um að opna fyrir ástinni á nýjan leik og segist hún vera tilbúin í rómantískt samband.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×