Lífið

Segist sjá eftir því að hafa farið í lýta­að­gerð

Máni Snær Þorláksson skrifar
Kylie Jenner segist hafa farið í lýtaaðgerð þegar hún var nítján ára gömul. Hún sjái þó eftir því.
Kylie Jenner segist hafa farið í lýtaaðgerð þegar hún var nítján ára gömul. Hún sjái þó eftir því. EPA/JUSTIN LANE

Raunveruleikastjarnan Kylie Jenner greinir frá því í nýjasta þættinum af The Kardashians að hún hafi farið í lýtaaðgerð. Áður hefur Jenner sagt að hún hafi einungis fengið sér fyllingar í varirnar en nú segist hún hafa farið í lýtaaðgerð fyrir nokkrum árum síðan.

Jenner útskýrir í þættinum sem um ræðir að hún hafi farið í brjóstaaðgerð áður en hún varð ólétt af sínu fyrsta barni, Stormi Webster, sem fæddist í febrúar árið 2018. Jenner var þá nítján ára gömul. Hún segist ennþá hafa verið að ná sér eftir aðgerðina þegar hún varð ólétt. 

Þetta er í fyrsta skipti sem Jenner opinberar það að hún hafi farið í slíka aðgerð. Þá segir Jenner, sem er 25 ára gömul í dag, að hún sjái eftir því að hafa farið í aðgerðina. 

„Ég vildi óska þess, augljóslega, að ég hefði aldrei gert þetta til að byrja með,“ segir raunveruleikastjarnan. Þá segist hún mæla með því að fólk sem hyggst fara í slíka aðgerð bíði með það þangað til það er hætt að eignast börn.

Jenner segir að hún vonist til þess að dóttir hennar eigi ekki eftir að stíga í hennar spor þegar kemur að þessu. „Það myndi brjóta í mér hjartað ef hún vill breyta á sér líkamanum þegar hún er nítján ára gömul,“ segir hún.

„Hún er það fallegasta í heimi. Ég vil vera besta móðirin og besta fyrirmyndin fyrir hana.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.