Skúraveður sunnan- og vestantil Atli Ísleifsson skrifar 26. júní 2023 07:16 Hiti veður á bilinu tíu til fimmtán stig, en að tuttugu stigum norðanlands. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir suðaustanátt á landinu í dag þar sem víðast hvar verður vindur á bilinu þrír til tíu metrar á sekúndu og hvassast á Suðausturlandi.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að það verði skúraveður sunnan- og vestantil en bjart með köflum á Norðausturlandi. Á Austfjörðum sé rakt loft og þoka og súld verði viðloðandi það svæði í dag. Hiti veður á bilinu tíu til fimmtán stig, en að tuttugu stigum norðanlands. „Á morgun er síðan vona á vaxandi austlægri átt með rigningu á morgun, 15-23 m/s með suðurströndinni og gular viðvaranir í gildi fyrir það svæði. Lengst af þurrt á norðanverðu landinu en fer að rigna þar undir kvöld,“ segir á vef Veðurstofunnar. Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir á Suður- og Suðausturlandi vegna ausan hvassviðris eða storms á morgun, frá hádegi og til klukkan 19 um kvöld. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Gengur í austan 8-15 m/s, en 15-23 við suðurströndina. Rigning á sunnaverðu landinu og einnig norðantil síðdegis. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast á Norðurlandi. Á miðvikudag: Vestlæg eða breytileg átt 5-13 m/s, hvassast syðst. Rigning með köflum, en þurrt að kalla norðaustanlands. Hiti 10 til 16 stig. Á fimmtudag og föstudag: Vestlæg eða breytileg átt 3-10 m/s og skúrir eða dálítil rigning í flestum landshlutum. Hiti breytist lítið. Á laugardag: Austan- og norðaustanátt með vætu víða um land. Hiti 8 til 14 stig. Á sunnudag: Útlit fyrir ákveðna norðanátt með rigningu og kólnandi veðri.
Veður Mest lesið „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Innlent Segir Harris veika á geði Erlent Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Innlent Uppgjör á hægri vængnum: „Ægishjálmur Sjálfstæðisflokksins“ ekki lengur veruleikinn Innlent Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Erlent Mennirnir tveir fundnir Innlent „Óþekku börnin frá Grindavík“ vakti úlfúð Innlent Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Erlent Ávaxtakarfan frumsýnd í Hveragerði Innlent Sagður hafa nauðgað konu fyrir níu árum Innlent Fleiri fréttir Lægð stjórnar veðrinu um helgina Lægðardrag þokast suður Rigning eða slydda norðan- og austanlands Dregur úr vindi og ofankomu Svalt í veðri og gengur í blástur Útlit fyrir áframhaldandi rólegheit Milt veður en lægð nálgast Hægir suðvestanvindar og yfirleitt bjartviðri Allt að 17 stig á Austurlandi Næsta lægð nálgast úr suðvestri Gular viðvaranir í hvassviðris Lægð nálgast landið í nótt og gular viðvaranir á morgun Rigning, slydda og jafnvel snjókoma norðaustanlands Gul viðvörun á Suður- og Suðausturlandi til hádegis Gular viðvaranir vegna storms sunnantil Um sjö stiga frost mældist í Eyjafirði í nótt Þurrt og bjart nokkuð víða Norðanáttum beint til landsins Von á 35 metrum á sekúndu í hviðum á Kjalarnesi Kalt, blautt og hvasst „Þetta er alvöru hret“ Snjókoma á Norðurlandi og ekki mælt með ferðalögum Gular og appelsínugular viðvaranir víða um land Búast við slyddu og snjókomu á fjallvegum Hiti gæti náð tuttugu stigum fyrir austan Hvessir aftur þegar líður á daginn Slær sums staðar í storm norðvestantil Lægð yfir landinu og gul viðvörun á Breiðafirði Bjartur dagur sunnantil og hiti að sextán stigum Spáð mildu veðri í dag Sjá meira