Lífið

Love Is­land stjarna á spítala eftir byrlun

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Wynter hafnaði fjórða sæti í níundu þáttaröð Love Island UK.
Wynter hafnaði fjórða sæti í níundu þáttaröð Love Island UK. Getty

Ástralska Love Island stjarnan Jessie Renée Wynter birti Instagram færslu í dag þar sem hún sagði frá því að hafa verið byrlað á skemmtistað á dögunum.

Wynter tók þátt í níundu þáttaröð raunveruleikaþáttanna Love Island UK og annarri þáttaröð Love Island Australia. Í þeim fyrrnefndu kynntist hún kærasta sínum, breska bóndanum Will Young. Parið hafnaði fjórða sæti í þáttaröðinni.

Í færslunni telur Wynter sig heppna að hafa haft kærastann, Young, með sér þegar atvikið átti sér stað. Hún segist þakklát fólkinu sem kom henni öruggri á sjúkrahús.

Þá brýnir hún mikilvægi þess að fara varlega og huga að öryggi þegar áfengi er við hendi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.