Lífið

Hveiti­kökur eru góðar með öllu á­leggi

Íris Hauksdóttir skrifar
Laufey Rós slær í gegn með girnilegum uppskriftum. 
Laufey Rós slær í gegn með girnilegum uppskriftum.  aðsend

Flestir kannast við vestfirskar hveitikökur. Hvort sem þær eru borðaðar hversdags eða til hátíðarbrigða geta matgæðingar sammælst um ágæti þeirra. Laufey Rós Halldórsdóttir matartæknir deilir hér sinni eftirlætis uppskrift. 

Laufey Rós Hallsdóttir hefur notið mikilla vinsælda á Facebook hópnum Gamaldags matur þar sem hún sýnir huggulegan heimilismat. Hveitikökur falla vel í þann flokk og þykja mörgum þær til að mynda ómissandi yfir jólin. 

Laufey segir hveitikökurnar ómissandi á veisluborðið.aðsend

Í haustlægðinni sem nú geysar yfir landið þrátt fyrir hér eigi að heita sumar er tilvalið að skella í hveitikökurnar sem Laufey Rós segir sáraeinfalt og því á færi flestra. 

Pönnukökupannan gerir gæfumuninn

Laufey er lærður matartæknir og starfar sem yfirmatráður á dvalarheimilinu Hulduhlíð á Eskifirði þar sem hún er búsett ásamt fjölskyldu sinni. 

Laufey segir lykilatriði að nota heita pönnukökupönnu við baksturinn. aðsend

Hún segir best að nota pönnukökupönnu við baksturinn þrátt fyrir að áður fyrr hafi hveitikökurnar verið steiktar á hellum rétt eins og flatkökur. „Ég geri þessa uppskrift oft bæði fyrir mitt heimilisfólk sem og aðra. 

Laufey býður alltaf upp á hveitikökum í fjölskylduveislum. aðsend

Þær eru alltaf í fjölskylduveislum og þá smyr ég þær yðurlega með reyktum laxi, silung eða hangikjöti. Svo er líka gott að stækka uppskriftina og eiga í frysti til að grípa í."


500 g hveiti

60 g mjúkt smjör

50 g sykur

4 tsk. lyftiduft

½ tsk. matarsódi

salt

4 dl mjólk


Hnoðið vel saman í höndunum eða notið hnoðarann í hrærivélinni þar til deigið hefur blandast vel. Skiptið því svo í nokkrar jafnar kúlur. Þið ættuð að ná sjö til tíu kúlum. Fletjið út í hringlóttar kökur og notið hveiti til að auðvelda verkið því deigið er svolítið klessulegt. Hnoðið í þá stærð sem pönnukökupannan er. Steikið svo á meðalheitri þurri pönnunni þar til byrjar að taka smá lit undir og snúið svo við. Þetta tekur ekki langan tíma.

Sjálf mælir Laufey með reyktum laxi, silung eða hangikjöti á kökurnar. aðsend

Berið svo fram með því áleggi að eigin vali. Hveitikökur eru góðar með öllu. 


Tengdar fréttir

Fermingar­barnið pantaði heima­­gerða brauð­tertu, marengs og pönnu­­kökur

Laufey Rós Hallsdóttir hefur notið mikilla vinsælda á Facebook hópnum Gamaldags matur þar sem hún sýnir huggulegan heimilismat. Samhliða matseldinni undirbýr Laufey fermingu sonar síns en sá sér þó fært að deila með lesendum Vísis uppskrift af girnilegri ostaköku sem hún hyggist galdra fram yfir páskahátíðina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.