Veiði

Fleiri fréttir af opnunum í laxveiði

Karl Lúðvíksson skrifar
Veiði er hafinn í Víðidalsá
Veiði er hafinn í Víðidalsá

Fleiri ár hafa verið að opna síðustu daga og heilt yfir virðast fyrstu dagarnir vera að gefa ágætis veiði en næsta stórstreymi á eftir að skera úr um hvernig sumarið kemur til með að líta út.

Veiði hófst til að mynda í Laxá í Leirársveit á laugardaginn og þar veiddist einn lax á fyrstu vakt en nokkir laxar sýndu sig svo það er greinilega eitthvað komið í ána. Níu laxar veiddust í Víðidalsá á fyrsta degi og lax sást nokkuð víða. Fyrsti lax sumarsins úr ánni veiddist í Stekkjarfljóti og var það 81 sm hrygna en fjórir laxar veiddust í Harðeyrarstreng sem er einn af skemmtilegri veiðistöðum Víðidalsár. Fitjá gaf síðan þrjá laxa en það er vel þekkt að stofninn sem gengur upp í þessa rómuðu hliðará Víðidalsár er snemmgengur og það er ekki óalgengt á þessum tíma að sjá laxa í Tjarnarfljóti og Laxapolli sem eru ofarlega í ánni.

Við fylgjumst spennt með næstu opnunum en Langá á Mýrum opnar í dag og Gljúfurá, Haffjarðará, Laxá í Aðaldal og fleiri ár opna svo í kjölfarið.  






×