Lífið samstarf

Æsi­spennandi keppni á milli ís­lenskra golf­hópa

Stöð 2
Golfarinn á Stöð 2 eru skemmtilegir þættir sem höfða til hins íslenska meðalkylfings, byrjenda sem og þeirra bestu, og raunar líka til þeirra sem alls ekki spila golf. 
Golfarinn á Stöð 2 eru skemmtilegir þættir sem höfða til hins íslenska meðalkylfings, byrjenda sem og þeirra bestu, og raunar líka til þeirra sem alls ekki spila golf. 

Golfarinn hefur vakið athygli áhorfenda Stöðvar 2 síðustu vikur enda margt skemmtilegt þar á seyði hjá þeim Hlyni Sigurðssyni og Ingu Lind Karlsdóttur sem höfðar jafn til hins íslenska meðalkylfings, byrjenda sem og þeirra bestu, og raunar jafnvel líka til þeirra sem alls ekki spila golf.

Nýjasta nýtt er Hópakeppni Golfarans sem fór af stað í síðasta þætti. Golfhópar eru þekkt fyrirbæri fólks sem hefur á einhverjum tímapunkti hópast saman og spilar svo saman golf reglulega, ferðast um heiminn, skemmtir sér og nærir geðheilsuna úti á golfvelli. Fyrstu hóparnir sem keppa sín á milli eru Golden og Miðvikudagsmótaröðin. 

Klippa: Golfarinn

Golden samanstendur af fyrrverandi handboltahetjum úr Hafnarfirði, m.a. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, Kristjönu Aradóttur, Kristínu Pétursdóttur, Unu Steinsdóttur, Margréti Theódórsdóttur og Huldu Soffíu Hermannsdóttur en þær tvær síðastnefndu kepptu fyrir hönd hópsins að þessu sinni á móti fulltrúum Miðvikudagsmótaraðarinnar. Fulltrúar þeirra voru þeir Haukur Örn Birgisson, fyrrverandi forseti GSÍ, og Skúli Malmquist, framkvæmdastjóri Íslenska dansflokksins.

Keppnin á milli þessara færu kylfinga var æsispennandi eins og sjá má í meðfylgjandi broti úr Golfaranum sem framleiddur er af Skot Productions.

Næsti þáttur er á dagskrá Stöðvar 2 á sunnudaginn kl. 19:00.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.