Áfram hlýtt austantil en svalara vestanlands Atli Ísleifsson skrifar 12. júní 2023 07:11 Reikna má með hita tíu til tuttugu stigum á landinu í dag þar sem hlýjast verður eystra. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir vestlægri átt í dag með léttskýjuðu og hlýju veðri á austanverðu landinu, en skýjuðu og svalara veðri vestanlands.
Fram eftir morgni má reikna með tíu til átján metrum á sekúndu á norðvestanverðu landinu en lægir svo. Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að það sé útlit fyrir svipuðu veðri á morgun, en þó öllu bjartara vestantil. Reikna má með hita tíu til tuttugu stigum á landinu í dag þar sem hlýjast verður eystra. „Hæð fyrir sunnan land þokast austur næstu daga. Á miðvikudag er spáð hægri sunnanátt með lítilsháttar rigningu á Suðvestur- og Vesturlandi en áfram þurrki og hlýindum fyrir norðan og austan,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Suðvestlæg eða breytileg átt 3-10. Víða léttskýjað, en skýjað með köflum vestanlands. Hiti 11 til 22 stig, hlýjast í innsveitum austantil. Á miðvikudag: Fremur hæg suðlæg átt. Bjart með köflum, en skýjað og lítilsháttar væta á Suðvestur- og Vesturlandi. Hiti breytist lítið. Á fimmtudag: Suðaustlæg eða breytileg átt, skýjað með köflum og stöku skúrir. Áfram hlýtt í veðri. Á föstudag: Sunnanátt og dálítil rigning sunnan- og vestanlands, en síðdegisskúrir norðaustantil. Hiti 10 til 23 stig, hlýjast á norðaustanverðu landinu. Á laugardag (lýðveldisdagurinn): Suðvestlæg átt og rigning með köflum, en úrkomulítið suðaustantil. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast á Austurlandi. Á sunnudag: Suðlæg eða breytileg átt og víða smáskúrir.
Veður Mest lesið „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Innlent Segir Harris veika á geði Erlent Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Innlent Uppgjör á hægri vængnum: „Ægishjálmur Sjálfstæðisflokksins“ ekki lengur veruleikinn Innlent Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Erlent „Óþekku börnin frá Grindavík“ vakti úlfúð Innlent Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Erlent Mennirnir tveir fundnir Innlent Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Erlent Ávaxtakarfan frumsýnd í Hveragerði Innlent Fleiri fréttir Lægð stjórnar veðrinu um helgina Lægðardrag þokast suður Rigning eða slydda norðan- og austanlands Dregur úr vindi og ofankomu Svalt í veðri og gengur í blástur Útlit fyrir áframhaldandi rólegheit Milt veður en lægð nálgast Hægir suðvestanvindar og yfirleitt bjartviðri Allt að 17 stig á Austurlandi Næsta lægð nálgast úr suðvestri Gular viðvaranir í hvassviðris Lægð nálgast landið í nótt og gular viðvaranir á morgun Rigning, slydda og jafnvel snjókoma norðaustanlands Gul viðvörun á Suður- og Suðausturlandi til hádegis Gular viðvaranir vegna storms sunnantil Um sjö stiga frost mældist í Eyjafirði í nótt Þurrt og bjart nokkuð víða Norðanáttum beint til landsins Von á 35 metrum á sekúndu í hviðum á Kjalarnesi Kalt, blautt og hvasst „Þetta er alvöru hret“ Snjókoma á Norðurlandi og ekki mælt með ferðalögum Gular og appelsínugular viðvaranir víða um land Búast við slyddu og snjókomu á fjallvegum Hiti gæti náð tuttugu stigum fyrir austan Hvessir aftur þegar líður á daginn Slær sums staðar í storm norðvestantil Lægð yfir landinu og gul viðvörun á Breiðafirði Bjartur dagur sunnantil og hiti að sextán stigum Spáð mildu veðri í dag Sjá meira