Vaxandi sunnanátt á vestanverðu landinu Atli Ísleifsson skrifar 7. júní 2023 07:15 Hiti á landinu verður á bilinu tíu til átján stig í dag og verður hlýjast eystra. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir hægri suðlægri átt í dag þar sem skýjað verður að mestu en úrkomulítið.
Gera má ráð fyrir vaxandi sunnanátt á vestanverðu landinu eftir hádegi og að það fari að rigna þar seinnipartinn. Á vef Veðurstofunnar segir að hiti verði á bilinu tíu til átján stig og hlýjast eystra. „Veðrið á fimmtudag og föstudag er mjög svipað. Sunnan og suðvestan 8-15 m/s og rigning eða súld en hægari og úrkomuminna austantil. Hiti breytist lítið. Dregur úr úrkomu aðfaranótt laugardags. Vestlæg átt 5-13 á laugardag en víða bjart en dálítil væta norðaustanlands í fyrstu. Heldur svalara með hita 5 til 12 stig. Á sunnudag og mánudag verður fremur hæg breytileg átt, bjart að mestu og hlýrra, hiti 10 til 18 stig en allt að 21 stigi eystra á mánudag,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Sunnan og suðvestan 8-15 m/s og víða rigning en heldur hægari vindur og úrkomulítið um landið austanvert. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast á Austurlandi. Á föstudag: Suðlæg átt 8-15 og rigning eða súld, hiti 8 til 13 stig, en þurrt og víða bjart um landið norðaustanvert og hiti að 18 stigum á þeim slóðum. Dregur úr úrkomu um kvöldið. Á laugardag: Vestlæg eða breytileg átt 5-10, og víða bjartviðri en litilsháttar væta norðvestantil. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast austantil. Á sunnudag og mánudag: Hæg vestlæg eða breytileg átt og víða léttskýjað. Hiti 10 til 18 stig yfir daginn, hlýjast í innsveitum norðaustanlands. Á þriðjudag: Útlit fyrir suðlæga átt 5-13 og dálítla vætu um sunnan- og vestanvert landið en bjart með köflum norðan- og austantil. Hiti 12 til 24 stig, hlýjast norðaustanlands.
Veður Mest lesið „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Innlent Segir Harris veika á geði Erlent Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Innlent Uppgjör á hægri vængnum: „Ægishjálmur Sjálfstæðisflokksins“ ekki lengur veruleikinn Innlent Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Erlent Mennirnir tveir fundnir Innlent „Óþekku börnin frá Grindavík“ vakti úlfúð Innlent Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Erlent Ávaxtakarfan frumsýnd í Hveragerði Innlent Sagður hafa nauðgað konu fyrir níu árum Innlent Fleiri fréttir Lægð stjórnar veðrinu um helgina Lægðardrag þokast suður Rigning eða slydda norðan- og austanlands Dregur úr vindi og ofankomu Svalt í veðri og gengur í blástur Útlit fyrir áframhaldandi rólegheit Milt veður en lægð nálgast Hægir suðvestanvindar og yfirleitt bjartviðri Allt að 17 stig á Austurlandi Næsta lægð nálgast úr suðvestri Gular viðvaranir í hvassviðris Lægð nálgast landið í nótt og gular viðvaranir á morgun Rigning, slydda og jafnvel snjókoma norðaustanlands Gul viðvörun á Suður- og Suðausturlandi til hádegis Gular viðvaranir vegna storms sunnantil Um sjö stiga frost mældist í Eyjafirði í nótt Þurrt og bjart nokkuð víða Norðanáttum beint til landsins Von á 35 metrum á sekúndu í hviðum á Kjalarnesi Kalt, blautt og hvasst „Þetta er alvöru hret“ Snjókoma á Norðurlandi og ekki mælt með ferðalögum Gular og appelsínugular viðvaranir víða um land Búast við slyddu og snjókomu á fjallvegum Hiti gæti náð tuttugu stigum fyrir austan Hvessir aftur þegar líður á daginn Slær sums staðar í storm norðvestantil Lægð yfir landinu og gul viðvörun á Breiðafirði Bjartur dagur sunnantil og hiti að sextán stigum Spáð mildu veðri í dag Sjá meira