Lífið

Ellý Ármanns komin á flugfreyjulestina

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Ellý hefur slegið í gegn með listaverkum sínum. Hér er hún á góðri stundu ásamt Hlyni sínum.
Ellý hefur slegið í gegn með listaverkum sínum. Hér er hún á góðri stundu ásamt Hlyni sínum.

Ellý Ármannsdóttir, lista­kona og hóp­tíma­kenn­ari hjá Ree­bok Fit­n­ess, mun starfa sem flugfreyja hjá Icelandair í sumar. Þetta herma heimildir fréttastofu.

Ellý virðist óhrædd við að prófa nýja hluti og lætur lítið stoppa sig og bætir sífellt í reynslubankann. En hún byrjaði fyrir nokkrum árum að starfa sem myndlistarkona og húðflúrari svo dæmi séu tekin. 

Ellý byrjaði ung að starfa í fjölmiðlum og var þula á Ríkissjónvarpinu um tíma til að fanga athygli föður síns, þar sem samband þeirra var lítið sem ekkert. 

„Ég skal segja þér af hverju ég sótti um að verða þula. Ég þekkti pabba minn lítið og hann var lítið í sambandi við mig og mig langaði að fanga athygli hans og ég vissi að hann horfði á fréttir og ég vissi að þulan kynnti fréttirnar. Þess vegna fór ég í fjölmiðla Sölvi,“ sagði Ellý í hlaðvarpsþætti Sölva Tryggva.

Ekki hefur náðst í Ellý vegna flugfreyjuævintýrsins fram undan en hún mun vafalaust slá í gegn í háloftunum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.