Íslenski boltinn

Oliver til ÍBV

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Oliver Heiðarsson fagnar marki sínu í úrslitaleik Mjólkurbikarsins í fyrra.
Oliver Heiðarsson fagnar marki sínu í úrslitaleik Mjólkurbikarsins í fyrra. vísir/hulda margrét

Fótboltamaðurinn Oliver Heiðarsson er genginn í raðir ÍBV frá FH. Hann skrifaði undir tveggja ára samning við ÍBV.

Auk Olivers hefur ÍBV fengið tvo jamaíska leikmenn á lokadegi félagaskiptagluggans, þá Dwayne Atkinson og Richard King.

Oliver, sem spilar oftast á kantinum, er uppalinn hjá Þrótti en gekk til liðs við FH fyrir tímabilið 2021. Hann hefur leikið fjörutíu leiki í efstu deild og skorað fimm mörk.

Oliver og nýju félagar hans í ÍBV sækja Keflavík heim í 4. umferð Bestu deildarinnar á laugardaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×